Fara í aðalinnihald
Komin frá lækninum. Þetta er barkabólga sem litli snúðurinn er með. Hann gæti fengið svona slæm hóstaköst næstu nætur en svo ætti þetta að læknast að sjálfu sér. Ég er mjög fengin að vera búin að fá þetta á hreint - nú veit ég hvernig ég á að bregðast við ef hann fær annað svona hóstakast.
Nú erum við bara að gera það sem maður gerir þegar maður er veikur..... kúrum og horfum á vídeó :) tökum þennan dag mjög rólega.

Bless í bili,
Sara

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Hitt og þetta

Langaði að henda inn nokkrum myndum.... Krakkarnir keyptu sér ný rúm. Helgi að setja saman rúmið hennar Söndru Tillbúið... eða næstum. Vantar bara skúffurnar undir rúmið. Sandra mjög sátt Næsta rúm sett saman Viktor líka sáttur. Hér vantar líka skúffurnar undir rúmið Sandra á sínum fyrsta leik vorsins. Missteig sig mjög ílla. Var mánuð að jafna sig en er núna komin á fullt i fótboltanum aftur Ég skaust i helgarferð til Köben á kóramót íslenskra kóra i Evrópu. Kórarnir æfðu saman och síðan voru haldnir kórtónleikar i kirkju við Strikið. Mótið endaði svo med svaka partýi um kvöldið Hér er hluti kórsins að fá sér bjór í einni pásunni Pabbi og Guðlaug sungu med Bergen kórnum. Hrikalega gaman að hitta þau .... með Völu, vínkonu í kórnum

Högskolepedagogik för handledare

Loksins er kúrsinn búinn. Búið að vera mikið að gera þessa haustönn en núna eftir á að hyggja var það þess virði. Nú er ég ótrúlega ánægð að ég skellti mér í þetta :) Ein af lestrar-stundunum í haust Dimma hélt mér selskap :)

Óskalistar

Sandra skrifaði óskalista í gær með fínu úrvali. Dýrir hlutir og líka minna dýrir hlutir. Fannar skrifaði líka óskalista... 2 hlutir... bara dýrir hlutir!! Hér er Söndru óskalisti :)