Fara í aðalinnihald
Buið að vera brjálað að gera í morgunn - á nú bara frí núna vegna þess að það var einn sem afboðaði sig. Það er klíník kl. 8.15 á morgunn og er nú svolítið stress í kringum það núna Skýrslan er þó næstum búin og nú er bara að læra hana utanað (hehe). Gvuuð hvað ég verð fegin þegar þetta er búið... ég er samt búin að læra alveg helling á þessu.
Fannar er alltaf jafn hress... honum finnst svo gaman á leikskólanum þessa dagana. Ég á helst að fara sem fyrst og kem allt of snemma að sækja hann!!! Hann byrjaði í kór í síðustu viku og hittist kórinn alltaf í 20 - 30 mín. á fimmtudögum. Það fyndna við það er að fóstran hans sagði að hann hafi ekki haft neinn áhuga á kórnum fyrir hálfu ári síðan en.... núna bara vildi hann koma - algjör rúsína. Í kórnum eru bara börn fædd 1999.
Verð að kveðja - það er verið að bíða eftir tölvu hérna....

Bæjó

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Hitt og þetta

Langaði að henda inn nokkrum myndum.... Krakkarnir keyptu sér ný rúm. Helgi að setja saman rúmið hennar Söndru Tillbúið... eða næstum. Vantar bara skúffurnar undir rúmið. Sandra mjög sátt Næsta rúm sett saman Viktor líka sáttur. Hér vantar líka skúffurnar undir rúmið Sandra á sínum fyrsta leik vorsins. Missteig sig mjög ílla. Var mánuð að jafna sig en er núna komin á fullt i fótboltanum aftur Ég skaust i helgarferð til Köben á kóramót íslenskra kóra i Evrópu. Kórarnir æfðu saman och síðan voru haldnir kórtónleikar i kirkju við Strikið. Mótið endaði svo med svaka partýi um kvöldið Hér er hluti kórsins að fá sér bjór í einni pásunni Pabbi og Guðlaug sungu med Bergen kórnum. Hrikalega gaman að hitta þau .... með Völu, vínkonu í kórnum

Viktor töffari

Viktor er búinn að byðja mig um að lita á sér hárið í nokkurn tíma. Ég lét loksins eftir! Hann var alveg með á hreinu hvernig hann vildi hafa hárið. Ég fylgdi því bara hans óskum og svei mér þá ef það tókst ekki bara ágætlega.... dæmið sjálf. Litli maðurinn er alla vega mjög ánægður :) Litun í gangi   Búið að klippa og lita Mjög sáttur Læt fylgja med eina mynd av heimasætunni tekin milli jóla og nýárs

Högskolepedagogik för handledare

Loksins er kúrsinn búinn. Búið að vera mikið að gera þessa haustönn en núna eftir á að hyggja var það þess virði. Nú er ég ótrúlega ánægð að ég skellti mér í þetta :) Ein af lestrar-stundunum í haust Dimma hélt mér selskap :)