Fara í aðalinnihald
Fór á fyrirlestur í gærkvöldi um næringarfræði Þetta var fyrirlestur sem var á vegum Heilsuráðgjafar og FNÍS (félag nema í sjúkraþjálfun). Þar sem ég sótti þennan fyrirlestur - og er á fjórða ári, get ég nú sótt um stöðu einkaþjálfara hjá World Class (ef ég hef útlitið með mér.... hef heyrt að það skiptir miklu máli hjá WC!! ). Hmm... ekki fór ég nú samt á þennan fyrirlestur með það í huga. Ég verð nú samt að segja fyrir mitt leyti að ég lærði ekki mikið nýtt í gær en það verður líklega annar fyrirlestur um fæðubótarefni seinna.... það verður sennilega fróðlegur fyrirlestur. Ég kom mjög vel út úr klíníkinni minni í gær. Kennari okkar hitti hvert okkar í dag og ræddi kosti og galla í klíníkinni. Ég er mjög sátt við mína frammistöðu
Nú er einungis 3 vikur þangað til Helgi kemur Við ætlum að fara í matarklúbb í Keflavík daginn sem hann kemur til landsins.... það verður pottþétt rosa stuð
Nú er sko kominn háttatími

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Arnar er í heimsókn hjá okkur núna
Aftur mætt á bloggið! Þá er Íslandsförinni lokið og ég hef nógan tíma til að sitja yfir þessu bloggi aftur. Það var nú mjög gott að koma heim aftur en þó líka doldið einmanalegt þegar ég fór með Fannar á leikskólann í gær..... aftur orðin ein! Edda vinkona er komin á fullt í vinnu þannig að það er ekki hægt að bögga hana lengur yfir daginn.... það er þó stutt í nýja fjölskyldumeðliminn þannig að það verður bráðum nóg að gera. Helgi er á fullu núna að pæla í bílakaupum.... ég kann ekkert á þessi mál þannig að hann grúskar einn í þessu - hann sýnir mér samt myndir bara svona til að fá samþykki mitt hehehe. Skilyrðin eru þó þau að við kaupum sjálfskiptan station bíl með loftkælingu. Erum með einn Opel Omega í sigtinu núna og fer hann líklega að skoða hann á morgunn.... spennandi! Það er strax búið að bóka gistipláss hjá okkur í febrúar.... endalaus gestagangur hjá okkur :) en það eru Raggi og Munda sem ætla að kíkja til okkar. Hlökkum að sjálfsögðu til að fá þau í heimsókn....
Eins og þið flest líklega vitið er litla prinsessan fædd.... lítil snúlla sem hefur fengið nafnið Sandra Ósk. Hún ákvað að drífa sig í heiminn aðfaranótt 3. október. Hún var að flýta sér svo mikið að ljósmóðirin sem tók á móti henni náði ekki einu sinni að skrá mig inn á fæðingardeildina áður en hún fæddist. Þessar ljósmæður verða alltaf jafn hissa hversu fljót þessi börn mín eru að koma í heiminn..... Fannar er rosalega stoltur af systur sinni. Nefnir nokkrum sinnum á dag hversu lítil og sæt honum finnst hún. Viktor aftur á móti hefur verið í smá baráttu um athygli en virðist þó vera farinn að sætta sig við hlutina núna. Hann er samt voða góður við hana og vill endalaust knúsa og kyssa hana. Allt gengur vel að öðru leyti. Sandra drekkur vel og sefur mikið.... alveg eins og það á að vera þegar maður er svona pínulítill. Hún er rosalega vær og góð.... algjör snúlla :) Fyrsta baðið - 6 daga gömul