Fara í aðalinnihald
Undanfarnir dagar hafa verið ansi erfiðir - eiginlega algjört hell! Ég held að við Edda séum búnar að lesa einar 30 rannsóknargreinar á þremur dögum og erum núna loksins komnar með markmið fyrir bs rannsóknina okkar. Puhh - mikill léttir. Við ætlum að vera með þrjá mænuskaðaða einstaklinga í upphengisþjálfun á göngumyllu og mæla svo áhrif þjálfunar á skreflengd og skreftíðni - og þar með líka skoða þátt gönguhraða á þessa þætti.... flókið mál og nenni ég ekki að ræða það frekar hér og nú. Vona bara að ég nái að klára þetta áður en Helgi kemur til landsins - eiginlega algjört must! Fannar er farinn að hlakka til og er hann alveg með á hreinu hvenær pabbi kemur heim Hann ætlar að fara til Ernu ömmu á morgunn eftir leikskólann og fá að vera í Keflavík þá nótt - þá get ég sett mig 100% í verkefnið.... það gæti orðið vinna fram á nótt Eeeen þetta á nú samt allt eftir að fara vel..... mikið djö.. er ég bjartsýn Nú væri Edda sko ánægð með mig (ég er nefnilega stressaði aðilinn í þessu vinnusambandi og hún sá rólegi - hehe). Að þeim orðum loknum er best að halda áfram puðinu.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Arnar er í heimsókn hjá okkur núna
Aftur mætt á bloggið! Þá er Íslandsförinni lokið og ég hef nógan tíma til að sitja yfir þessu bloggi aftur. Það var nú mjög gott að koma heim aftur en þó líka doldið einmanalegt þegar ég fór með Fannar á leikskólann í gær..... aftur orðin ein! Edda vinkona er komin á fullt í vinnu þannig að það er ekki hægt að bögga hana lengur yfir daginn.... það er þó stutt í nýja fjölskyldumeðliminn þannig að það verður bráðum nóg að gera. Helgi er á fullu núna að pæla í bílakaupum.... ég kann ekkert á þessi mál þannig að hann grúskar einn í þessu - hann sýnir mér samt myndir bara svona til að fá samþykki mitt hehehe. Skilyrðin eru þó þau að við kaupum sjálfskiptan station bíl með loftkælingu. Erum með einn Opel Omega í sigtinu núna og fer hann líklega að skoða hann á morgunn.... spennandi! Það er strax búið að bóka gistipláss hjá okkur í febrúar.... endalaus gestagangur hjá okkur :) en það eru Raggi og Munda sem ætla að kíkja til okkar. Hlökkum að sjálfsögðu til að fá þau í heimsókn....
Eins og þið flest líklega vitið er litla prinsessan fædd.... lítil snúlla sem hefur fengið nafnið Sandra Ósk. Hún ákvað að drífa sig í heiminn aðfaranótt 3. október. Hún var að flýta sér svo mikið að ljósmóðirin sem tók á móti henni náði ekki einu sinni að skrá mig inn á fæðingardeildina áður en hún fæddist. Þessar ljósmæður verða alltaf jafn hissa hversu fljót þessi börn mín eru að koma í heiminn..... Fannar er rosalega stoltur af systur sinni. Nefnir nokkrum sinnum á dag hversu lítil og sæt honum finnst hún. Viktor aftur á móti hefur verið í smá baráttu um athygli en virðist þó vera farinn að sætta sig við hlutina núna. Hann er samt voða góður við hana og vill endalaust knúsa og kyssa hana. Allt gengur vel að öðru leyti. Sandra drekkur vel og sefur mikið.... alveg eins og það á að vera þegar maður er svona pínulítill. Hún er rosalega vær og góð.... algjör snúlla :) Fyrsta baðið - 6 daga gömul