Fara í aðalinnihald
Þá er Fannar farinn til Keflavíkur enn eina ferðina.... og ég á fullu í skólanum. Við Edda erum að reyna að klára allt pappírshafið sem þarf að fylgja umsókninni til vísindasiðanefndar... eða réttara sagt siðanefndar landspítalans - þær eru tvær, en við eigum að skila til landspítalans þar sem rannsóknin okkar fer fram gegnum spítalann. Þetta er ótrúlegt vesen og mikil vinna ... það var svosem búið að segja okkur það!!
Ég er alveg að drepast úr harðsperrum þessa dagana - geng um eins og einhver gæs og get varla hreyft mig fyrir sársauka. Við ákváðum þess vegna að hvíla okkur frá lyftingunum í hádeginu í dag en ætlum að mæta gallvaskar á morgunn - þetta er bara svo gaman
Jæja dúllurnar mínar best að drífa sig í mat til mömmu og pabba (híhí - pabbi ætlaði nú ekki að vilja bjóða mér í mat þegar hann frétti að Fannar væri í Kefló ) og halda svo áfram með umsóknina - kveð að sinni.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Hitt og þetta

Langaði að henda inn nokkrum myndum.... Krakkarnir keyptu sér ný rúm. Helgi að setja saman rúmið hennar Söndru Tillbúið... eða næstum. Vantar bara skúffurnar undir rúmið. Sandra mjög sátt Næsta rúm sett saman Viktor líka sáttur. Hér vantar líka skúffurnar undir rúmið Sandra á sínum fyrsta leik vorsins. Missteig sig mjög ílla. Var mánuð að jafna sig en er núna komin á fullt i fótboltanum aftur Ég skaust i helgarferð til Köben á kóramót íslenskra kóra i Evrópu. Kórarnir æfðu saman och síðan voru haldnir kórtónleikar i kirkju við Strikið. Mótið endaði svo med svaka partýi um kvöldið Hér er hluti kórsins að fá sér bjór í einni pásunni Pabbi og Guðlaug sungu med Bergen kórnum. Hrikalega gaman að hitta þau .... með Völu, vínkonu í kórnum

Viktor töffari

Viktor er búinn að byðja mig um að lita á sér hárið í nokkurn tíma. Ég lét loksins eftir! Hann var alveg með á hreinu hvernig hann vildi hafa hárið. Ég fylgdi því bara hans óskum og svei mér þá ef það tókst ekki bara ágætlega.... dæmið sjálf. Litli maðurinn er alla vega mjög ánægður :) Litun í gangi   Búið að klippa og lita Mjög sáttur Læt fylgja med eina mynd av heimasætunni tekin milli jóla og nýárs

Högskolepedagogik för handledare

Loksins er kúrsinn búinn. Búið að vera mikið að gera þessa haustönn en núna eftir á að hyggja var það þess virði. Nú er ég ótrúlega ánægð að ég skellti mér í þetta :) Ein af lestrar-stundunum í haust Dimma hélt mér selskap :)