HELGI KOMINN TIL LANDSINS.
Það var alveg frábært að sjá hann aftur
og er Fannar auðvitað búinn að vera rosa kátur með þetta allt saman. Þeir feðgarnir skruppu út í bakarí að kaupa eitthvað góðgæti með hádegismatunum - Helgi hefur ekki bragðað íslenska kókóskúlu síðan hann fór til Svíþjóðar (uppáhaldið hans - híhí). Við Edda náðum að skila inn yfirliti okkar yfir BS verkefnið okkar á áætluðum tíma - við vorum rosa kátar með árangurinn enda um kjarnakonur að ræða
hehe. Skólinn byrjar svo hjá mér á morgunn eeeen það er nú ekki víst að ég verði rosa dugleg að mæta í tímana þessa vikuna..... sjáum bara til með það
Nú eru strákarnir mínir komnir aftur og ætla ég að fara að gæða mér á skinkuhorninu sem ég bað þá að kaupa.

Það var alveg frábært að sjá hann aftur



Ummæli