Fara í aðalinnihald
Jájá... nú er maður bara farinn að lyfta lóðum í hádeginu. Við Edda skelltum okkur með strákunum í bekknum að lyfta í Valsheimilinu - Þeir eru ótrúlega duglegir að fara allfaf í hádeginu. Nú ætlum við sem sagt að fá að vera með Þetta er lí­ka ótrúglega góð nýting á tíma þar sem hádegin fara alltaf í eitthvað hangs hvort sem er.
Nú svo er mín bara búin að kaupa jólagjöfina handa kallinum en það er náttúrulega algjört leyndarmál - hí­hí. Að öðru leyti læt ég Helga sjá um allar jólagjafir - ég efast meira að segja um að ég nái að skrifa jólakort þetta árið! Þetta er alltaf sama sagan hver jól... aldrei tími í jólakökubaksturinn... jólakortin... jólagjafakaup á síðustu stundu - kannast einhver við þetta??? Annars er nú ekki hægt annað en að komast í smá jólaskap með allan þennan snjó í kringum sig
Við Edda fengum annars þær "gleðifréttir" að við þurfum að skila inn umsókn okkar til vísindasiðanefndar fyrir næstu helgi. Það verður aftur á móti mjög gott að skila þessu af sér... enda ætlum við að framkvæma rannsóknina okkar í janúar þannig að við megum eiginlega ekki vera seinni með þetta. Tíminn alveg flýgur áfram.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Hitt og þetta

Langaði að henda inn nokkrum myndum.... Krakkarnir keyptu sér ný rúm. Helgi að setja saman rúmið hennar Söndru Tillbúið... eða næstum. Vantar bara skúffurnar undir rúmið. Sandra mjög sátt Næsta rúm sett saman Viktor líka sáttur. Hér vantar líka skúffurnar undir rúmið Sandra á sínum fyrsta leik vorsins. Missteig sig mjög ílla. Var mánuð að jafna sig en er núna komin á fullt i fótboltanum aftur Ég skaust i helgarferð til Köben á kóramót íslenskra kóra i Evrópu. Kórarnir æfðu saman och síðan voru haldnir kórtónleikar i kirkju við Strikið. Mótið endaði svo med svaka partýi um kvöldið Hér er hluti kórsins að fá sér bjór í einni pásunni Pabbi og Guðlaug sungu med Bergen kórnum. Hrikalega gaman að hitta þau .... með Völu, vínkonu í kórnum

Viktor töffari

Viktor er búinn að byðja mig um að lita á sér hárið í nokkurn tíma. Ég lét loksins eftir! Hann var alveg með á hreinu hvernig hann vildi hafa hárið. Ég fylgdi því bara hans óskum og svei mér þá ef það tókst ekki bara ágætlega.... dæmið sjálf. Litli maðurinn er alla vega mjög ánægður :) Litun í gangi   Búið að klippa og lita Mjög sáttur Læt fylgja med eina mynd av heimasætunni tekin milli jóla og nýárs

Högskolepedagogik för handledare

Loksins er kúrsinn búinn. Búið að vera mikið að gera þessa haustönn en núna eftir á að hyggja var það þess virði. Nú er ég ótrúlega ánægð að ég skellti mér í þetta :) Ein af lestrar-stundunum í haust Dimma hélt mér selskap :)