Fara í aðalinnihald
Mikið asskoti er ég búin að vera dugleg.... tók æfingu í gær og í fyrradag - og ætla að taka eina æfingu á eftir Nú er sko að koma sér í kjólinn fyrir jólin (híhí) Ég virðist hafa smá tilhneigingu til að taka mér langar hvíldir frá þjálfun... svona af og til! Svo þegar ég loks byrja aftur þá skil ég ekki hvers vegna ég hætti.... ooohh ég meina hvíldi
Fannar fer til Ernu ömmu og Hjartar afa á morgunn og verður hjá þeim fram á laugardag. Það er nú ekki hægt að segja annað en að familian sé dugleg að aðstoða okkur og erum við gríðarlega þakklát fyrir alla þessa hjálp Fannar fer svo á Dýrin í Hálsaskógi með Sirrý ömmu og Sigga afa á laugardaginn..... jájá það er dagskrá hjá litla manninum - enda vinsæll mjög Ég var nú eitthvað að pæla í að fara í vísindaferð á föstudag en ég held ég notfæri mér bara tímann til að læra þar sem maður hefur svona svaka fína pössun... það er nú ekki annað hægt. Nóg um það - komin tími fyrir æfingu...

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Hitt og þetta

Langaði að henda inn nokkrum myndum.... Krakkarnir keyptu sér ný rúm. Helgi að setja saman rúmið hennar Söndru Tillbúið... eða næstum. Vantar bara skúffurnar undir rúmið. Sandra mjög sátt Næsta rúm sett saman Viktor líka sáttur. Hér vantar líka skúffurnar undir rúmið Sandra á sínum fyrsta leik vorsins. Missteig sig mjög ílla. Var mánuð að jafna sig en er núna komin á fullt i fótboltanum aftur Ég skaust i helgarferð til Köben á kóramót íslenskra kóra i Evrópu. Kórarnir æfðu saman och síðan voru haldnir kórtónleikar i kirkju við Strikið. Mótið endaði svo med svaka partýi um kvöldið Hér er hluti kórsins að fá sér bjór í einni pásunni Pabbi og Guðlaug sungu med Bergen kórnum. Hrikalega gaman að hitta þau .... með Völu, vínkonu í kórnum

Viktor töffari

Viktor er búinn að byðja mig um að lita á sér hárið í nokkurn tíma. Ég lét loksins eftir! Hann var alveg með á hreinu hvernig hann vildi hafa hárið. Ég fylgdi því bara hans óskum og svei mér þá ef það tókst ekki bara ágætlega.... dæmið sjálf. Litli maðurinn er alla vega mjög ánægður :) Litun í gangi   Búið að klippa og lita Mjög sáttur Læt fylgja med eina mynd av heimasætunni tekin milli jóla og nýárs

Högskolepedagogik för handledare

Loksins er kúrsinn búinn. Búið að vera mikið að gera þessa haustönn en núna eftir á að hyggja var það þess virði. Nú er ég ótrúlega ánægð að ég skellti mér í þetta :) Ein af lestrar-stundunum í haust Dimma hélt mér selskap :)