Fara í aðalinnihald


Ég er búin að slaka mjög vel á yfir jólin - Helgi er duglegur að leyfa mér að sofa og sér um litla snáðann á morgnana. Fannar setti met í gær í svefni - hann sofnaði í stofunni óháttaður klukkan hálf átta og svaf til hálf tíu í morgunn. Held að hann hafi verið með uppsafnaða þreytu eftir allan spenninginn um jólin Annars er próflesturinn hafin hjá mér. Fer í fyrsta prófið 6. janúar og auðvitað ætla ég að vera voða skynsöm og byrja snemma svo ég þurfi ekki að sitja stíft yfir bókunum á meðan Helgi er á landinu! Það skemmtilega við þetta próftímabil er að þetta eru mín síðustu próf við Háskóla Íslands!! Hreint ekki slæmt... mér finnst það aftur á móti frekar skrýtið Þetta er allt að bresta á - bara ein önn eftir..... svo bara Svíþjóð
Við ætlum að skella okkur í þrjú bíó á eftir með litla manninn, ætlum að sjá Finding Nemo og efast ég ekki um að við eigum öll þrjú eftir að skemmta okkur vel Svo er auðvitað algjört must að sjá The Lord of the Rings sem fyrst og er planið að sjá hana með Helga.
Bless í bili, Sara.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Arnar er í heimsókn hjá okkur núna
Aftur mætt á bloggið! Þá er Íslandsförinni lokið og ég hef nógan tíma til að sitja yfir þessu bloggi aftur. Það var nú mjög gott að koma heim aftur en þó líka doldið einmanalegt þegar ég fór með Fannar á leikskólann í gær..... aftur orðin ein! Edda vinkona er komin á fullt í vinnu þannig að það er ekki hægt að bögga hana lengur yfir daginn.... það er þó stutt í nýja fjölskyldumeðliminn þannig að það verður bráðum nóg að gera. Helgi er á fullu núna að pæla í bílakaupum.... ég kann ekkert á þessi mál þannig að hann grúskar einn í þessu - hann sýnir mér samt myndir bara svona til að fá samþykki mitt hehehe. Skilyrðin eru þó þau að við kaupum sjálfskiptan station bíl með loftkælingu. Erum með einn Opel Omega í sigtinu núna og fer hann líklega að skoða hann á morgunn.... spennandi! Það er strax búið að bóka gistipláss hjá okkur í febrúar.... endalaus gestagangur hjá okkur :) en það eru Raggi og Munda sem ætla að kíkja til okkar. Hlökkum að sjálfsögðu til að fá þau í heimsókn....
Eins og þið flest líklega vitið er litla prinsessan fædd.... lítil snúlla sem hefur fengið nafnið Sandra Ósk. Hún ákvað að drífa sig í heiminn aðfaranótt 3. október. Hún var að flýta sér svo mikið að ljósmóðirin sem tók á móti henni náði ekki einu sinni að skrá mig inn á fæðingardeildina áður en hún fæddist. Þessar ljósmæður verða alltaf jafn hissa hversu fljót þessi börn mín eru að koma í heiminn..... Fannar er rosalega stoltur af systur sinni. Nefnir nokkrum sinnum á dag hversu lítil og sæt honum finnst hún. Viktor aftur á móti hefur verið í smá baráttu um athygli en virðist þó vera farinn að sætta sig við hlutina núna. Hann er samt voða góður við hana og vill endalaust knúsa og kyssa hana. Allt gengur vel að öðru leyti. Sandra drekkur vel og sefur mikið.... alveg eins og það á að vera þegar maður er svona pínulítill. Hún er rosalega vær og góð.... algjör snúlla :) Fyrsta baðið - 6 daga gömul