Fara í aðalinnihald


Ætti eiginlega að vera að skrifa ritgerð núna en er bara ekki að nenna því!! Reyni að gera allt annað ... eins og til dæmis að blogga Við Edda byrjum að mæla sjúklingana okkar í rannsókninni okkar á morgunn - maður er nú smá stressaður yfir þessu og erum við búnar að undirbúa okkur þokkalega. Við vorum í allan gærdag að prófa búnaðinn uppi á Grensási og gekk það barasta vel. Við munum mæla næstu þrjá daga og svo byrjar þjálfunin í næstu viku.... spennandi
Ása Dagný á afmæli í dag og vil ég óska henni innilega til hamingju með daginn

Nú þýðir víst ekki að draga þetta meira á langinn... best að gerast doldið kreatívur og byrja að pota einhverjum texta niður á blað - kv. Sara

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Arnar er í heimsókn hjá okkur núna
Aftur mætt á bloggið! Þá er Íslandsförinni lokið og ég hef nógan tíma til að sitja yfir þessu bloggi aftur. Það var nú mjög gott að koma heim aftur en þó líka doldið einmanalegt þegar ég fór með Fannar á leikskólann í gær..... aftur orðin ein! Edda vinkona er komin á fullt í vinnu þannig að það er ekki hægt að bögga hana lengur yfir daginn.... það er þó stutt í nýja fjölskyldumeðliminn þannig að það verður bráðum nóg að gera. Helgi er á fullu núna að pæla í bílakaupum.... ég kann ekkert á þessi mál þannig að hann grúskar einn í þessu - hann sýnir mér samt myndir bara svona til að fá samþykki mitt hehehe. Skilyrðin eru þó þau að við kaupum sjálfskiptan station bíl með loftkælingu. Erum með einn Opel Omega í sigtinu núna og fer hann líklega að skoða hann á morgunn.... spennandi! Það er strax búið að bóka gistipláss hjá okkur í febrúar.... endalaus gestagangur hjá okkur :) en það eru Raggi og Munda sem ætla að kíkja til okkar. Hlökkum að sjálfsögðu til að fá þau í heimsókn....
Eins og þið flest líklega vitið er litla prinsessan fædd.... lítil snúlla sem hefur fengið nafnið Sandra Ósk. Hún ákvað að drífa sig í heiminn aðfaranótt 3. október. Hún var að flýta sér svo mikið að ljósmóðirin sem tók á móti henni náði ekki einu sinni að skrá mig inn á fæðingardeildina áður en hún fæddist. Þessar ljósmæður verða alltaf jafn hissa hversu fljót þessi börn mín eru að koma í heiminn..... Fannar er rosalega stoltur af systur sinni. Nefnir nokkrum sinnum á dag hversu lítil og sæt honum finnst hún. Viktor aftur á móti hefur verið í smá baráttu um athygli en virðist þó vera farinn að sætta sig við hlutina núna. Hann er samt voða góður við hana og vill endalaust knúsa og kyssa hana. Allt gengur vel að öðru leyti. Sandra drekkur vel og sefur mikið.... alveg eins og það á að vera þegar maður er svona pínulítill. Hún er rosalega vær og góð.... algjör snúlla :) Fyrsta baðið - 6 daga gömul