Fara í aðalinnihald


Mig langar ekkert smá að fara á Korn tónleikana í lok maí..... en því miður verð ég í útskriftarferð á sama tíma

Annars er auðvitað allt gott að frétta og alveg frábært að fá Helga aftur heim (í smá tíma!). Ég er ekki alveg að nenna að fara í verknámið á morgunn en verð víst samt að mæta - það hefur verið gert grín að því að ég verði "veik" alla næstu viku þannig að það er víst ekki hægt að nota það sem afsökun fyrir að mæta ekki.... það yrði alla vega ansi grunsamlegt En ég er auðvitað svo samviskusöm og dugleg að engum gæti nokkurn tímann dottið í hug að ég geri svoleiðis

Nú má ég ekkert vera að þessu lengur og þarf að gera nokkrar skýrslur - bless í bili.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Hitt og þetta

Langaði að henda inn nokkrum myndum.... Krakkarnir keyptu sér ný rúm. Helgi að setja saman rúmið hennar Söndru Tillbúið... eða næstum. Vantar bara skúffurnar undir rúmið. Sandra mjög sátt Næsta rúm sett saman Viktor líka sáttur. Hér vantar líka skúffurnar undir rúmið Sandra á sínum fyrsta leik vorsins. Missteig sig mjög ílla. Var mánuð að jafna sig en er núna komin á fullt i fótboltanum aftur Ég skaust i helgarferð til Köben á kóramót íslenskra kóra i Evrópu. Kórarnir æfðu saman och síðan voru haldnir kórtónleikar i kirkju við Strikið. Mótið endaði svo med svaka partýi um kvöldið Hér er hluti kórsins að fá sér bjór í einni pásunni Pabbi og Guðlaug sungu med Bergen kórnum. Hrikalega gaman að hitta þau .... með Völu, vínkonu í kórnum

Högskolepedagogik för handledare

Loksins er kúrsinn búinn. Búið að vera mikið að gera þessa haustönn en núna eftir á að hyggja var það þess virði. Nú er ég ótrúlega ánægð að ég skellti mér í þetta :) Ein af lestrar-stundunum í haust Dimma hélt mér selskap :)

Óskalistar

Sandra skrifaði óskalista í gær með fínu úrvali. Dýrir hlutir og líka minna dýrir hlutir. Fannar skrifaði líka óskalista... 2 hlutir... bara dýrir hlutir!! Hér er Söndru óskalisti :)