Fara í aðalinnihald


Kærulaus!!
Nú er ég búin að skila lokaklíník skýrslunni - phúú það var doldið erfitt að skila henni frá mér... manni finnst maður endalaust geta lesið yfir aftur og bætt eitthvað. Aftur á móti nenni ég ekki að gera neitt núna - alveg kæruleysið uppmálað Ég er alla vega nokkuð ánægð með það sem komið er og verður restin bara að koma í ljós - djísuss ... doldið stressandi. Það verður gaman gaman gaman þegar þetta verður búið

Fannar er kominn með algjöra litadellu þessa dagana. Hann hefur aldrei haft mikinn áhuga á að dunda sér yfir litabókum og hefur maður alltaf þurft að sitja yfir honum og helst lita myndirnar fyrir hann. Hann á alveg fullt af litum og nokkrar litabækur - en aldrei sýnt þeim neinn áhuga... fyrr en nú allt í einu. Er rosa duglegur að lita og finnst það voða gaman... skondið

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Hitt og þetta

Langaði að henda inn nokkrum myndum.... Krakkarnir keyptu sér ný rúm. Helgi að setja saman rúmið hennar Söndru Tillbúið... eða næstum. Vantar bara skúffurnar undir rúmið. Sandra mjög sátt Næsta rúm sett saman Viktor líka sáttur. Hér vantar líka skúffurnar undir rúmið Sandra á sínum fyrsta leik vorsins. Missteig sig mjög ílla. Var mánuð að jafna sig en er núna komin á fullt i fótboltanum aftur Ég skaust i helgarferð til Köben á kóramót íslenskra kóra i Evrópu. Kórarnir æfðu saman och síðan voru haldnir kórtónleikar i kirkju við Strikið. Mótið endaði svo med svaka partýi um kvöldið Hér er hluti kórsins að fá sér bjór í einni pásunni Pabbi og Guðlaug sungu med Bergen kórnum. Hrikalega gaman að hitta þau .... með Völu, vínkonu í kórnum

Viktor töffari

Viktor er búinn að byðja mig um að lita á sér hárið í nokkurn tíma. Ég lét loksins eftir! Hann var alveg með á hreinu hvernig hann vildi hafa hárið. Ég fylgdi því bara hans óskum og svei mér þá ef það tókst ekki bara ágætlega.... dæmið sjálf. Litli maðurinn er alla vega mjög ánægður :) Litun í gangi   Búið að klippa og lita Mjög sáttur Læt fylgja med eina mynd av heimasætunni tekin milli jóla og nýárs

Högskolepedagogik för handledare

Loksins er kúrsinn búinn. Búið að vera mikið að gera þessa haustönn en núna eftir á að hyggja var það þess virði. Nú er ég ótrúlega ánægð að ég skellti mér í þetta :) Ein af lestrar-stundunum í haust Dimma hélt mér selskap :)