Þá er ég mætt aftur! Búin að vera í major veseni með tölvuna.... rhi lokuðu fyrir netið hjá mér þar sem einhverjar veirur voru að dælast inn á mig. Þeir létu mig svo barasta ekkert vita af þessu þannig að ég fæ ekki að vita þetta fyrr en eftir fimm daga - þegar ég hringi í þá til að athuga málið, ógeðslega lélegt finnst mér!. Alla vega þá er allt komið í lag núna. Addi reddaði mér alveg, "takk æðislega Addi"

Nú eru bara tvær vikur í skil á ritgerðinni og komið doldið stress í okkur. Við erum stopp eins og er í einhverju tölfræðirugli sem við þurfum að komast í gegnum sem fyrst svo við getum haldið áfram að skrifa. Vonum bara það besta.
Well - best að fara að gera eitthvað af viti.
Ummæli