Fara í aðalinnihald
Heimsókn og skemmtisigling í
vændum

Gengur rosa vel á leikskólanum, Fannar er þar núna og sæki ég hann um tvöleytið (eins og í gær). Hann borðar morgunmat með krökkunum klukkan níu og svo kveður hann mig. Reynir svona smá að mótmæla en er svo samt alveg til í þetta.. hehe hann plummar sig vel. Kristinn ætlar svo að koma til okkar í heimsókn á eftir þar sem leikskólinn hans er lokaður eftir hádegi þannig að það verður stuð á þessu heimili á eftir þegar við sækjum Fannar.

Helgi hefur nú ekki verið sá duglegasti að blogga undanfarið... hmmm hann þarf að taka sig á ef hann ætlar að ná að blogga fimm sinnum í þessum mánuði eins og hann var búinn að lofa. Annars er það að frétta af húsbóndanum á þessu heimili að hann er smátt og smátt að breytast í húsmóðir... sbr. bloggið hans (vil taka það fram að ég er ekki að kvarta ;). Hann ætlar þó að endurheimta hluta af karlmennsku sinni nú um helgina. Hann er nefnilega að fara í sólarhringssiglingu eingöngu ætluð karlmönnum um tvöleytið í dag. Þetta á víst að vera algjör karlmennskuferð og engum píkum (hvort sem það eru karlkyns- eða kvenkynspíkur!) leyft að stíga um borð.... eins og þeir orða það sjálfir hmmmm!!

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Jólaskapið komið Hér er búið að snjóa í alla nótt og snjóar enn..... þar að auki alveg blankalogn þannig að það getur eiginlega ekki orðið jólalegra. Fannar er nú þegar búinn að henda tveimur snjóboltum í mig og var planið hans í dag að búa til fleiri. Það verður örugglega rosa stuð hjá honum í leikskólanum í dag :) Þetta barn stækkar svo mikið að hann er löngu vaxinn upp úr snjóbuxunum sínum síðan í fyrra vetur.... þær ná honum næstum upp á miðja kálfa! Það er sem sagt kominn tími til að við foreldrarnir kaupum handa honum nýjar kuldabuxur svo hann sé nú almennilega klæddur drengurinn.... ekki seinna vænna nú þegar snjórinn er kominn. Helgi var á næturvakt í nótt. Fannar tilkynnti við kvöldmatarborðið í gær að það væri bara gott að pabbi sinn væri að fara að vinna. Hann veit nefnilega að hann fær að kúra hjá mömmu sinni þegar pabbi hans er á vakt (þó hann hafi ekki nefnt það í framhaldinu :o)
Aftur mætt á bloggið! Þá er Íslandsförinni lokið og ég hef nógan tíma til að sitja yfir þessu bloggi aftur. Það var nú mjög gott að koma heim aftur en þó líka doldið einmanalegt þegar ég fór með Fannar á leikskólann í gær..... aftur orðin ein! Edda vinkona er komin á fullt í vinnu þannig að það er ekki hægt að bögga hana lengur yfir daginn.... það er þó stutt í nýja fjölskyldumeðliminn þannig að það verður bráðum nóg að gera. Helgi er á fullu núna að pæla í bílakaupum.... ég kann ekkert á þessi mál þannig að hann grúskar einn í þessu - hann sýnir mér samt myndir bara svona til að fá samþykki mitt hehehe. Skilyrðin eru þó þau að við kaupum sjálfskiptan station bíl með loftkælingu. Erum með einn Opel Omega í sigtinu núna og fer hann líklega að skoða hann á morgunn.... spennandi! Það er strax búið að bóka gistipláss hjá okkur í febrúar.... endalaus gestagangur hjá okkur :) en það eru Raggi og Munda sem ætla að kíkja til okkar. Hlökkum að sjálfsögðu til að fá þau í heimsókn....
Ég fór og heimsótti Huddinge sjukhus í gær. Fékk að fylgja eftir íslenskum sjúkraþjálfara sem vinnur þar. Hún gaf mér upp góðar upplýsingar um hvernig ég þarf að bera mig að til að fá löggildingu hér í Svíþjóð og svo erum við Edda búnar að vesenast smá í þeim málum nú í dag. Frábær tilfinning að þessir hlutir séu komnir í gang. Af því að ég er nú að tala um sjúkraþjálfun þá vil ég óska sjúkraþjálfaranum og vinkonu minni - henni Rósu - innilega til hamingju með daginn .... ég veit að hún er tryggur lesandi þessarar síðu. Nú er akkúrat vika þangað til mamma, pabbi, Guðlaug og Svenni koma í heimsókn.... mikil tilhlökkun í gangi hér á þessu heimili Að öðru leyti er ég búin að vera alveg farlama af harðsperrum undanfarna tvo daga. Hef ekki getað gengið upp og niður tröppur án þess að að finna gríðarlega til... meira að segja átt erfitt með að setjast á klósettið!!!!!!