Fara í aðalinnihald
Þá erum við aftur orðin þrjú... eða þrjú + bumbubúi réttara sagt. Jói fór sem sagt í dag. Rosalega skemmtilegt að fá hann í heimsókn. Við röltum helling um borgina um helgina og sýndum honum það helsta. Fannar var svooo duglegur og labbaði með okkur út um allt. Hann hefur svo sem alltaf verið duglegur að labba þannig að við pældum kannski ekki mikið í því fyrr en við komum heim og vorum öll ansi þreytt.
Í dag er gamla rútínan aftur komin af stað. Helgi er á sinni fyrstu vakt eftir tveggja vikna frí, Fannar heldur áfram að fara á leikskólann og ég...... ja - ég er bara heima við. Núna er ég reyndar búin að taka fyrsta skrefið í atvinnuleytinni. Guðrún Schewing kom mér í samband við íslenskan sjúkraþjálfara sem vinnur á Huddinge sjukhus. Ég hafði samband við hana í dag og ætla ég að hitta hana í þessari eða næstu viku og spjalla við hana um hvernig þetta gengur allt fyrir sig hérna úti. Hún sagði mér aftur á móti að það væri litla vinnu að fá núna og ekki batnaði líkurnar þar sem ég er ófrísk. Ég er samt ekki búin að gefast upp...... ég er ekki að vonast eftir fastráðningu og ekki set ég neinar kröfur á hvar ég fæ vinnu... alla vega ekki eins og staðan er í dag.
Nú er aftur á móti best að fara að drífa sig í háttinn..... góða nótt.

Ummæli

Guðlaug sagði…
Ég hlakka sko líka til að sjá ykkur! Takk fyrir myndirnar í dag, flottur bumbubúi ;)
Kveðja, litla sys

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Arnar er í heimsókn hjá okkur núna
Aftur mætt á bloggið! Þá er Íslandsförinni lokið og ég hef nógan tíma til að sitja yfir þessu bloggi aftur. Það var nú mjög gott að koma heim aftur en þó líka doldið einmanalegt þegar ég fór með Fannar á leikskólann í gær..... aftur orðin ein! Edda vinkona er komin á fullt í vinnu þannig að það er ekki hægt að bögga hana lengur yfir daginn.... það er þó stutt í nýja fjölskyldumeðliminn þannig að það verður bráðum nóg að gera. Helgi er á fullu núna að pæla í bílakaupum.... ég kann ekkert á þessi mál þannig að hann grúskar einn í þessu - hann sýnir mér samt myndir bara svona til að fá samþykki mitt hehehe. Skilyrðin eru þó þau að við kaupum sjálfskiptan station bíl með loftkælingu. Erum með einn Opel Omega í sigtinu núna og fer hann líklega að skoða hann á morgunn.... spennandi! Það er strax búið að bóka gistipláss hjá okkur í febrúar.... endalaus gestagangur hjá okkur :) en það eru Raggi og Munda sem ætla að kíkja til okkar. Hlökkum að sjálfsögðu til að fá þau í heimsókn....
Eins og þið flest líklega vitið er litla prinsessan fædd.... lítil snúlla sem hefur fengið nafnið Sandra Ósk. Hún ákvað að drífa sig í heiminn aðfaranótt 3. október. Hún var að flýta sér svo mikið að ljósmóðirin sem tók á móti henni náði ekki einu sinni að skrá mig inn á fæðingardeildina áður en hún fæddist. Þessar ljósmæður verða alltaf jafn hissa hversu fljót þessi börn mín eru að koma í heiminn..... Fannar er rosalega stoltur af systur sinni. Nefnir nokkrum sinnum á dag hversu lítil og sæt honum finnst hún. Viktor aftur á móti hefur verið í smá baráttu um athygli en virðist þó vera farinn að sætta sig við hlutina núna. Hann er samt voða góður við hana og vill endalaust knúsa og kyssa hana. Allt gengur vel að öðru leyti. Sandra drekkur vel og sefur mikið.... alveg eins og það á að vera þegar maður er svona pínulítill. Hún er rosalega vær og góð.... algjör snúlla :) Fyrsta baðið - 6 daga gömul