Fara í aðalinnihald
Helgi nú búinn að vera í fríi í rúma viku. Líklega ástæðan fyrir því að ég hef ekkert bloggað í tæpa viku.... Hann er nefnilega alltaf í tölvunni, maður kemst bara ekki að! Sést t.d. á því hversu duglegur hann er búinn að vera að blogga undanfarið.
Í gær fórum við að skoða líkamsræktarstöð sem er hérna rétt hjá. Ég er að spá í að kaupa mér kort - réttara sagt eiginlega búin að ákveða að kaupa mér kort þar. Helgi hefur frábæra æfingaaðstöðu uppi á spítala þannig að hann heldur áfram að nota hana. Ég er nú bara orðin frekar spennt að byrja að æfa aftur... mér finnst svo rosalega gaman að fara í góða spinningtíma eða body pump og svoleiðis.
Í kvöld er stefnan sett heim til Sunnu. Hún á afmæli á morgunn og er búin að bjóða stelpunum heim í stelpulegt kaffi og stelpulegar veitingar. Ég mun því setjast á hjólið í kvöld í sparígallanum og bruna yfir í Älvsjö. Helgi og Fannar fá því að strákast í kvöld.
Fannar var svoooo duglegur í gærkvöldi... Málið er að við höfum þurft að vera hjá honum þar til hann sofnar þar sem hann er svo myrkfælinn en í gær var hann alveg til í að prófa sjálfur. Við fórum saman yfir ákveðin öryggisatriði... eins og t.d. að enginn kæmist nú inn um kattalúguna hans Felix (nema bara Felix) og að ég myndi passa húsið niðri en Símon og Týra (bangsarnir hans) myndu passa hann uppi. Þegar hann var búinn að velta þessu öllu fyrir sér þá fannst honum hann vera öruggur og var alveg til í að fara einn að sofa. S.s. litli strákurinn okkar stóð sig eins og hetja í gær og finnst okkur þetta vera mjög stórt skref hjá honum. Svo var hann náttúrulega gífurlega stoltur af þessu og lét pabba sinn vita af þessu um leið og hann vaknaði.

Ummæli

Guðlaug sagði…
Frábært! Það er gott að vita að þetta er allt að lagast hjá honum. Og ég er fegin að hann er ekki búin að fatta skrímslin undir rúminu ;)
Nú erum við komin með net heim til okkar svo ég fer að setja upp Skype og þá getum við loksins spjallað saman hvenær sem okkur dettur í hug. Hlakka til!!!
Kveðja, Litla sys
Sara sagði…
Jiiibíííí :oD

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Arnar er í heimsókn hjá okkur núna
Aftur mætt á bloggið! Þá er Íslandsförinni lokið og ég hef nógan tíma til að sitja yfir þessu bloggi aftur. Það var nú mjög gott að koma heim aftur en þó líka doldið einmanalegt þegar ég fór með Fannar á leikskólann í gær..... aftur orðin ein! Edda vinkona er komin á fullt í vinnu þannig að það er ekki hægt að bögga hana lengur yfir daginn.... það er þó stutt í nýja fjölskyldumeðliminn þannig að það verður bráðum nóg að gera. Helgi er á fullu núna að pæla í bílakaupum.... ég kann ekkert á þessi mál þannig að hann grúskar einn í þessu - hann sýnir mér samt myndir bara svona til að fá samþykki mitt hehehe. Skilyrðin eru þó þau að við kaupum sjálfskiptan station bíl með loftkælingu. Erum með einn Opel Omega í sigtinu núna og fer hann líklega að skoða hann á morgunn.... spennandi! Það er strax búið að bóka gistipláss hjá okkur í febrúar.... endalaus gestagangur hjá okkur :) en það eru Raggi og Munda sem ætla að kíkja til okkar. Hlökkum að sjálfsögðu til að fá þau í heimsókn....
Eins og þið flest líklega vitið er litla prinsessan fædd.... lítil snúlla sem hefur fengið nafnið Sandra Ósk. Hún ákvað að drífa sig í heiminn aðfaranótt 3. október. Hún var að flýta sér svo mikið að ljósmóðirin sem tók á móti henni náði ekki einu sinni að skrá mig inn á fæðingardeildina áður en hún fæddist. Þessar ljósmæður verða alltaf jafn hissa hversu fljót þessi börn mín eru að koma í heiminn..... Fannar er rosalega stoltur af systur sinni. Nefnir nokkrum sinnum á dag hversu lítil og sæt honum finnst hún. Viktor aftur á móti hefur verið í smá baráttu um athygli en virðist þó vera farinn að sætta sig við hlutina núna. Hann er samt voða góður við hana og vill endalaust knúsa og kyssa hana. Allt gengur vel að öðru leyti. Sandra drekkur vel og sefur mikið.... alveg eins og það á að vera þegar maður er svona pínulítill. Hún er rosalega vær og góð.... algjör snúlla :) Fyrsta baðið - 6 daga gömul