Fara í aðalinnihald
Vikan
Þessi vika er búin að vera aldeilis fín. Undanfarna tvo daga er ég búin að rölta um bæinn með Eddu minni... kíkt í búðir og farið á kaffihús og svoleiðis dúllerí. Helgi er búinn að vera mikið heima við þar sem hann er nú að ljúka næturvaktaviku - síðasta vaktin í kvöld og nótt - þannig að ég er alla vega ekki búin að hangsa ein heima þessa vikuna. Helgi fer svo í tveggja vikna frí núna eftir þessa vakt - ætli maður eigi ekki bara eftir að heimsækja nokkur kaffihús á þeim tíma og hafa það sem notalegast.
Fannari gengur svo vel á leikskólanum - starfsfólkinu finnst hann vera farinn að skilja miklu meira og þau skilja hann líka betur og betur. Hann sagði: "tack snälla" við pabba sinn um daginn þegar hann var eitthvað að aðstoða hann - hann er greinilega farinn að pikka upp hin og þessi orðin í rólegheitunum híhí. Hrikalega dúllulegt að heyra hann segja eitthvað á sænsku.

Á morgun liggur leiðin í barna-afmæli til Örnu og Einars Gunnars. Eldri strákurinn þeirra, Hlynur, er 5 ára. Ég hlakka bara til.... mér finnst alltaf gaman að hitta þetta Íslendingapakk hérna í Stokkhólmi og ekki finnst Fannari það leiðinlegt heldur.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Vill enginn kommenta neitt?
Nafnlaus sagði…
Það virðist ekki vera!

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Arnar er í heimsókn hjá okkur núna
Aftur mætt á bloggið! Þá er Íslandsförinni lokið og ég hef nógan tíma til að sitja yfir þessu bloggi aftur. Það var nú mjög gott að koma heim aftur en þó líka doldið einmanalegt þegar ég fór með Fannar á leikskólann í gær..... aftur orðin ein! Edda vinkona er komin á fullt í vinnu þannig að það er ekki hægt að bögga hana lengur yfir daginn.... það er þó stutt í nýja fjölskyldumeðliminn þannig að það verður bráðum nóg að gera. Helgi er á fullu núna að pæla í bílakaupum.... ég kann ekkert á þessi mál þannig að hann grúskar einn í þessu - hann sýnir mér samt myndir bara svona til að fá samþykki mitt hehehe. Skilyrðin eru þó þau að við kaupum sjálfskiptan station bíl með loftkælingu. Erum með einn Opel Omega í sigtinu núna og fer hann líklega að skoða hann á morgunn.... spennandi! Það er strax búið að bóka gistipláss hjá okkur í febrúar.... endalaus gestagangur hjá okkur :) en það eru Raggi og Munda sem ætla að kíkja til okkar. Hlökkum að sjálfsögðu til að fá þau í heimsókn....
Eins og þið flest líklega vitið er litla prinsessan fædd.... lítil snúlla sem hefur fengið nafnið Sandra Ósk. Hún ákvað að drífa sig í heiminn aðfaranótt 3. október. Hún var að flýta sér svo mikið að ljósmóðirin sem tók á móti henni náði ekki einu sinni að skrá mig inn á fæðingardeildina áður en hún fæddist. Þessar ljósmæður verða alltaf jafn hissa hversu fljót þessi börn mín eru að koma í heiminn..... Fannar er rosalega stoltur af systur sinni. Nefnir nokkrum sinnum á dag hversu lítil og sæt honum finnst hún. Viktor aftur á móti hefur verið í smá baráttu um athygli en virðist þó vera farinn að sætta sig við hlutina núna. Hann er samt voða góður við hana og vill endalaust knúsa og kyssa hana. Allt gengur vel að öðru leyti. Sandra drekkur vel og sefur mikið.... alveg eins og það á að vera þegar maður er svona pínulítill. Hún er rosalega vær og góð.... algjör snúlla :) Fyrsta baðið - 6 daga gömul