Fara í aðalinnihald
Allt gengur sinn vanagang á þessum bæ. Ég sit núna og er að bíða eftir heimsókn frá Mío en þeir ætla að koma með fína nýja stólinn okkar og fótapulluna einhvern tímann fyrir klukkan eitt. Bara að vona að þeir komi með réttan lit í þetta skiptið!! Ætlaði að skella í eina köku á meðan ég er að bíða en þá vantar auðvitað hráefni í hana og ekki má ég skjótast út í búð núna ef þeir skildu nú koma akkúrat á meðan.

Kristinn - Sigurðar og Sunnu son - var í pössun hjá okkur laugardagsnóttina. Fannar var svo spenntur að fá sinn fyrsta næturgest og var fjörið auðvitað eftir því. Við elduðum meira að segja fyrsta lambalærið á laugardagskvöldið þannig að það var rosa veisla. Á sunnudeginum fór Helgi á kvöldvakt en við Fannar skelltum okkur í sund í Erikstadsbadet með öllu íslendingapakkinu hérna. Brjálað að gera í sundinu - troðfullt af folki og var maður algjörlega búinn með alla orku þegar heim var komið. Fannar samt voða sáttur og sofnaði snemma það kvöldið.

Well - í þessum skrifuðu orðum er verið að bera inn nýju möblurnar. Best að kíkja á þetta og fara svo að gera eitthvað af viti hér.

Ummæli

Guðlaug sagði…
Við komum eftir 1 dag!!! Sjáumst þá ;)
Sara sagði…
Sjáumst á morgunn híhí :oD
Helgi sagði…
Ðaþ iræv lev ðigeþ, Innevs.

IgleH.

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Hitt og þetta

Langaði að henda inn nokkrum myndum.... Krakkarnir keyptu sér ný rúm. Helgi að setja saman rúmið hennar Söndru Tillbúið... eða næstum. Vantar bara skúffurnar undir rúmið. Sandra mjög sátt Næsta rúm sett saman Viktor líka sáttur. Hér vantar líka skúffurnar undir rúmið Sandra á sínum fyrsta leik vorsins. Missteig sig mjög ílla. Var mánuð að jafna sig en er núna komin á fullt i fótboltanum aftur Ég skaust i helgarferð til Köben á kóramót íslenskra kóra i Evrópu. Kórarnir æfðu saman och síðan voru haldnir kórtónleikar i kirkju við Strikið. Mótið endaði svo med svaka partýi um kvöldið Hér er hluti kórsins að fá sér bjór í einni pásunni Pabbi og Guðlaug sungu med Bergen kórnum. Hrikalega gaman að hitta þau .... með Völu, vínkonu í kórnum

Viktor töffari

Viktor er búinn að byðja mig um að lita á sér hárið í nokkurn tíma. Ég lét loksins eftir! Hann var alveg með á hreinu hvernig hann vildi hafa hárið. Ég fylgdi því bara hans óskum og svei mér þá ef það tókst ekki bara ágætlega.... dæmið sjálf. Litli maðurinn er alla vega mjög ánægður :) Litun í gangi   Búið að klippa og lita Mjög sáttur Læt fylgja med eina mynd av heimasætunni tekin milli jóla og nýárs

Högskolepedagogik för handledare

Loksins er kúrsinn búinn. Búið að vera mikið að gera þessa haustönn en núna eftir á að hyggja var það þess virði. Nú er ég ótrúlega ánægð að ég skellti mér í þetta :) Ein af lestrar-stundunum í haust Dimma hélt mér selskap :)