Fara í aðalinnihald
Ég skellti mér í morgunn í líkamsræktina og keypti mér hálfs árs kort - nú bíð ég bara eftir gífurlegum harðsperrum eftir puð dagsins - þær eru strax að koma fram. Ótrúlega frískandi!

Litli bumbubúinn er alltaf í fótboltaleik inni í maganum á mér.... Helgi hefur meira að segja fengið að finna hreyfingar. Næsti sónar er eftir eina viku og vonandi mun krílið sýna okkur aðeins meira í það skiptið.

Ég hef gert þó nokkrar tilraunir til að ná í þennan sjúkraþjálfara á Huddinge sjukhus en án árangurs. Ég er þar af leiðandi ekki farin að hitta hana enn. Það mun nú vonandi samt gerast á næstu dögum. Ég hef aðeins kíkt á atvinnusíðurnar á netinu og þar er vægast sagt ansi lítið um að velja..... og hvað þá eitthvað tímabundið sem myndi henta mér eins og er.

Helgi var annars að byrja að vinna á barnalæknamóttöku í Huddinge og verður þar í 2-3 mánuði (man ekki alveg hversu lengi). Hann mun því ekki geta tekið vaktir á Karólinska sjukhuset á virkum dögum og tekur hann því mun færri vaktir en hann er vanur... ekki finnst mér það slæmt ;-)

Ummæli

Sara sagði…
Ég kannast eitthvað við þetta comment hjá þér Svenni! Copy - paste?

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Arnar er í heimsókn hjá okkur núna
Aftur mætt á bloggið! Þá er Íslandsförinni lokið og ég hef nógan tíma til að sitja yfir þessu bloggi aftur. Það var nú mjög gott að koma heim aftur en þó líka doldið einmanalegt þegar ég fór með Fannar á leikskólann í gær..... aftur orðin ein! Edda vinkona er komin á fullt í vinnu þannig að það er ekki hægt að bögga hana lengur yfir daginn.... það er þó stutt í nýja fjölskyldumeðliminn þannig að það verður bráðum nóg að gera. Helgi er á fullu núna að pæla í bílakaupum.... ég kann ekkert á þessi mál þannig að hann grúskar einn í þessu - hann sýnir mér samt myndir bara svona til að fá samþykki mitt hehehe. Skilyrðin eru þó þau að við kaupum sjálfskiptan station bíl með loftkælingu. Erum með einn Opel Omega í sigtinu núna og fer hann líklega að skoða hann á morgunn.... spennandi! Það er strax búið að bóka gistipláss hjá okkur í febrúar.... endalaus gestagangur hjá okkur :) en það eru Raggi og Munda sem ætla að kíkja til okkar. Hlökkum að sjálfsögðu til að fá þau í heimsókn....
Eins og þið flest líklega vitið er litla prinsessan fædd.... lítil snúlla sem hefur fengið nafnið Sandra Ósk. Hún ákvað að drífa sig í heiminn aðfaranótt 3. október. Hún var að flýta sér svo mikið að ljósmóðirin sem tók á móti henni náði ekki einu sinni að skrá mig inn á fæðingardeildina áður en hún fæddist. Þessar ljósmæður verða alltaf jafn hissa hversu fljót þessi börn mín eru að koma í heiminn..... Fannar er rosalega stoltur af systur sinni. Nefnir nokkrum sinnum á dag hversu lítil og sæt honum finnst hún. Viktor aftur á móti hefur verið í smá baráttu um athygli en virðist þó vera farinn að sætta sig við hlutina núna. Hann er samt voða góður við hana og vill endalaust knúsa og kyssa hana. Allt gengur vel að öðru leyti. Sandra drekkur vel og sefur mikið.... alveg eins og það á að vera þegar maður er svona pínulítill. Hún er rosalega vær og góð.... algjör snúlla :) Fyrsta baðið - 6 daga gömul