Fara í aðalinnihald
Jibíííí!!
Við Fannar ætlum að koma til Íslands 28. des. og eyða áramótunum þar. Erum reyndar ekki komin með flugmiða heim aftur.... eigum eftir að ákveða þá dagsetningu. Er að vonast til að Helgi fái smá frí og geti komið aðra vikuna í janúar.... það verður víst að koma í ljós seinna.

Ummæli

Arnar Thor sagði…
Mikið skelfing er ég ánægður fyrir þína hönd. Við Sólrún myndum alveg þiggja smá Ísland um Jólin.
Það sem þú ættir að fá þér er:
Egils appelsín og nóg af því.
Hengi og hangikjöt
Laufabrauð
jólasmákökur og nóg af því
ora baunir (allar sortir)
fisk, fisk og fisk (reyndar geturðu gert það núna:))

kv.

Arnar Thor
Sara sagði…
Þakka þér kærlega fyrir Arnar. Ég skal vera dugleg í íslenska matnum .... baaara fyrir þig :-)
Guðlaug sagði…
Frábært að heyra! Vona bara að Helgi komist sem fyrst líka :)

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Arnar er í heimsókn hjá okkur núna
Aftur mætt á bloggið! Þá er Íslandsförinni lokið og ég hef nógan tíma til að sitja yfir þessu bloggi aftur. Það var nú mjög gott að koma heim aftur en þó líka doldið einmanalegt þegar ég fór með Fannar á leikskólann í gær..... aftur orðin ein! Edda vinkona er komin á fullt í vinnu þannig að það er ekki hægt að bögga hana lengur yfir daginn.... það er þó stutt í nýja fjölskyldumeðliminn þannig að það verður bráðum nóg að gera. Helgi er á fullu núna að pæla í bílakaupum.... ég kann ekkert á þessi mál þannig að hann grúskar einn í þessu - hann sýnir mér samt myndir bara svona til að fá samþykki mitt hehehe. Skilyrðin eru þó þau að við kaupum sjálfskiptan station bíl með loftkælingu. Erum með einn Opel Omega í sigtinu núna og fer hann líklega að skoða hann á morgunn.... spennandi! Það er strax búið að bóka gistipláss hjá okkur í febrúar.... endalaus gestagangur hjá okkur :) en það eru Raggi og Munda sem ætla að kíkja til okkar. Hlökkum að sjálfsögðu til að fá þau í heimsókn....
Eins og þið flest líklega vitið er litla prinsessan fædd.... lítil snúlla sem hefur fengið nafnið Sandra Ósk. Hún ákvað að drífa sig í heiminn aðfaranótt 3. október. Hún var að flýta sér svo mikið að ljósmóðirin sem tók á móti henni náði ekki einu sinni að skrá mig inn á fæðingardeildina áður en hún fæddist. Þessar ljósmæður verða alltaf jafn hissa hversu fljót þessi börn mín eru að koma í heiminn..... Fannar er rosalega stoltur af systur sinni. Nefnir nokkrum sinnum á dag hversu lítil og sæt honum finnst hún. Viktor aftur á móti hefur verið í smá baráttu um athygli en virðist þó vera farinn að sætta sig við hlutina núna. Hann er samt voða góður við hana og vill endalaust knúsa og kyssa hana. Allt gengur vel að öðru leyti. Sandra drekkur vel og sefur mikið.... alveg eins og það á að vera þegar maður er svona pínulítill. Hún er rosalega vær og góð.... algjör snúlla :) Fyrsta baðið - 6 daga gömul