Fara í aðalinnihald
Núna eru rólegheit hjá okkur Fannari - Helgi er farinn á vakt og verður að vinna fram á miðnætti. Í gær fórum við í partý til Sigurðar og Sunnu. Við pöntuðum indverskan mat.... æðislega góður.... við skötuhjúin tókum því nú bara rólega en þetta var mjög gaman og nokkrir komnir vel í glas þegar við létum okkur hverfa.
Helgi fór á laugardaginn og sótti níu kíló af íslenskri ýsu. Við keyptum af fyrirtæki sem heitir Íslandsfiskur - þetta fyrirtæki kemur ca. fjórum sinnum á ári með ýmsar íslenskar vörur til Svíþjóðar og Danmerkur. Alveg brilliant. Nú er frystirinn okkar fullur af íslenskum mat.... fiski og lambakjöti... hehe já við eigum sko tvö stór lambalæri í frystinum en Edda vinkona og pabbi gáfu okkur sitt hvort lærið..... namm namm það verður veisla hjá okkur á næstu dögum.

Well best að fara að athuga með kvöldmat handa okkur Fannari.... hann er eitthvað að suða um að fara á McDonalds..... spurning hvort ég slái ekki bara til.....

Ummæli

Sara sagði…
Svenni minn! Þú færð sko ekki að koma nálægt lambakjötinu okkar.... þú færð alveg nóg af því nú þegar!
Hjá okkur muntu fá grænmetisrétti og fisk úr Eystrasaltinu.

Hlakka til að sjá þig.