Fara í aðalinnihald
Þá er jólafríið á Íslandi komið á hreint hjá okkur Fannari. Við förum 28. desember og fljúgum aftur heim 16. janúar - langt og gott frí.... hlakka mjög til. Helgi kemur mjög sennilega líka og verður með okkur seinustu vikuna - hann er að reyna að losna við eina næturvakt og ef honum tekst það kemst hann 6. jan. annars ekki fyrr en 8. jan.

Fannar er núna í afmælisveislu hjá leikskólavini sínum, William heitir hann. Afmælið er frá kl. 14 til 16 og bara börnum boðið. Hann er orðinn svo duglegur með sænskuna - skilur heilan helling og er hann búinn að fá hrós frá Ingrid fóstru um að hann hafi núna tekið stórt stökk í að gera sig skiljanlegan. Nú er það bara ég sem sit eftir með litla sænskukunnáttu. Ég er núna alvarlega að pæla í að fara á sænskunámskeið. Til eru fullt af námskeiðum sem heita "svenska för invandrare". Ég læri víst litla sænsku bara á því að fara út í búð að versla eða spjalla smá við fóstrurnar á leikskólanum eða hlusta á aerobic-kennarana með skipanir um að næst eigi að lyfta hverju hnéi þrisvar.

Á morgunn ætlum við Íslendingarnir hér að hittast og halda smá jólaföndur. Eða alla vega konurnar og börnin..... Helgi er nú búinn að gefa lítið út á það að fara að föndra.... ekki nógu karlmannlegt ;o) Mér finnst nú ofsalega gaman að dunda eitthvað svona en er aftur á móti ekki mjög hugmyndarík. Ég fór í eina föndurbúð niðri í bæ í gær og ég held að ég hafi staðið þar inni í klukkutíma og vissi ekkert hvað ég átti að gera. Ég endaði á því að fara tómhent heim (sökum tímaskorts) og fór bara í hverfisbókabúðina og keypti einhvern pappa til að búa til jólakort. Kannski sé ég eitthvað sniðugt hjá dömunum á morgunn og fari svo bara aftur í þessa blessuðu föndurbúð. Annars langar mig svo að byrja að prjóna eitthvað en kem aftur að því að ég veit ekkert hvað ég á að prjóna (er enginn meistari í að prjóna sko!). Ég prjónaði teppi þegar ég gekk með Fannar sem gekk vel þannig að ég vil eiginlega ekki prjóna annað teppi núna.... hmmmm.

Well, Felix er að reyna að pota sér hérna á milli mín og lyklaborðsins.... honum finnst sennilega hann ekki fá nógu mikið klapp eins og er.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Arnar er í heimsókn hjá okkur núna
Aftur mætt á bloggið! Þá er Íslandsförinni lokið og ég hef nógan tíma til að sitja yfir þessu bloggi aftur. Það var nú mjög gott að koma heim aftur en þó líka doldið einmanalegt þegar ég fór með Fannar á leikskólann í gær..... aftur orðin ein! Edda vinkona er komin á fullt í vinnu þannig að það er ekki hægt að bögga hana lengur yfir daginn.... það er þó stutt í nýja fjölskyldumeðliminn þannig að það verður bráðum nóg að gera. Helgi er á fullu núna að pæla í bílakaupum.... ég kann ekkert á þessi mál þannig að hann grúskar einn í þessu - hann sýnir mér samt myndir bara svona til að fá samþykki mitt hehehe. Skilyrðin eru þó þau að við kaupum sjálfskiptan station bíl með loftkælingu. Erum með einn Opel Omega í sigtinu núna og fer hann líklega að skoða hann á morgunn.... spennandi! Það er strax búið að bóka gistipláss hjá okkur í febrúar.... endalaus gestagangur hjá okkur :) en það eru Raggi og Munda sem ætla að kíkja til okkar. Hlökkum að sjálfsögðu til að fá þau í heimsókn....
Eins og þið flest líklega vitið er litla prinsessan fædd.... lítil snúlla sem hefur fengið nafnið Sandra Ósk. Hún ákvað að drífa sig í heiminn aðfaranótt 3. október. Hún var að flýta sér svo mikið að ljósmóðirin sem tók á móti henni náði ekki einu sinni að skrá mig inn á fæðingardeildina áður en hún fæddist. Þessar ljósmæður verða alltaf jafn hissa hversu fljót þessi börn mín eru að koma í heiminn..... Fannar er rosalega stoltur af systur sinni. Nefnir nokkrum sinnum á dag hversu lítil og sæt honum finnst hún. Viktor aftur á móti hefur verið í smá baráttu um athygli en virðist þó vera farinn að sætta sig við hlutina núna. Hann er samt voða góður við hana og vill endalaust knúsa og kyssa hana. Allt gengur vel að öðru leyti. Sandra drekkur vel og sefur mikið.... alveg eins og það á að vera þegar maður er svona pínulítill. Hún er rosalega vær og góð.... algjör snúlla :) Fyrsta baðið - 6 daga gömul