Fara í aðalinnihald
Jóli jóli
Ég er á fullu að jólast þessa dagana. Búin að kaupa smáveigis af jólaskrauti og baka piparkökur. Ætla að baka fleiri smákökur á morgunn og grafa upp jólakassann uppi á lofti. Ástæðan er nú sú að það er fyrsti í aðventu á sunnudaginn og við ætlum að halda smá litlu jól fyrir vini okkar hér. Börnin okkar ætla að gefa hvort öðru eina litla gjöf. Það verður því "väldigt mysigt" hjá okkur á sunnudaginn yfir smákökum og kertaljósi.

Það er orðið daglegt brauð að fá Nonna í heimsókn hingað en hann gisti hjá okkur síðast liðna nótt. Aftur var hann á ferð út af vinnunni en hann stoppaði nú bara rétt yfir blánóttina og fór strax aftur í morgunn. Hann sagðist ætla að reyna að koma EKKI aftur næstu helgi... hehe.

Akkúrat núna er verið að kynna vinningshafa í sænska idol-inu hérna og verð ég því að þjóta.

Góða helgi.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Hitt og þetta

Langaði að henda inn nokkrum myndum.... Krakkarnir keyptu sér ný rúm. Helgi að setja saman rúmið hennar Söndru Tillbúið... eða næstum. Vantar bara skúffurnar undir rúmið. Sandra mjög sátt Næsta rúm sett saman Viktor líka sáttur. Hér vantar líka skúffurnar undir rúmið Sandra á sínum fyrsta leik vorsins. Missteig sig mjög ílla. Var mánuð að jafna sig en er núna komin á fullt i fótboltanum aftur Ég skaust i helgarferð til Köben á kóramót íslenskra kóra i Evrópu. Kórarnir æfðu saman och síðan voru haldnir kórtónleikar i kirkju við Strikið. Mótið endaði svo med svaka partýi um kvöldið Hér er hluti kórsins að fá sér bjór í einni pásunni Pabbi og Guðlaug sungu med Bergen kórnum. Hrikalega gaman að hitta þau .... með Völu, vínkonu í kórnum

Viktor töffari

Viktor er búinn að byðja mig um að lita á sér hárið í nokkurn tíma. Ég lét loksins eftir! Hann var alveg með á hreinu hvernig hann vildi hafa hárið. Ég fylgdi því bara hans óskum og svei mér þá ef það tókst ekki bara ágætlega.... dæmið sjálf. Litli maðurinn er alla vega mjög ánægður :) Litun í gangi   Búið að klippa og lita Mjög sáttur Læt fylgja med eina mynd av heimasætunni tekin milli jóla og nýárs

Högskolepedagogik för handledare

Loksins er kúrsinn búinn. Búið að vera mikið að gera þessa haustönn en núna eftir á að hyggja var það þess virði. Nú er ég ótrúlega ánægð að ég skellti mér í þetta :) Ein af lestrar-stundunum í haust Dimma hélt mér selskap :)