Fara í aðalinnihald
Saran er óvenju sybbin í dag. Var að bíða eftir einhverjum vatnskalli í morgunn milli hálf átta og hálf tíu. Hringdi svo í eitthvað símanúmer sem gefið var upp til að láta vita að ég þyrfti aðeins að bregða mér frá til að fara með drenginn á leikskóla. Ég náði að blaðra inn á eitthvert talhólf á slæmri sænsku að ég yrði í burtu í 15 mínútur..... fór með Fannar kl. 8.45 og þegar ég kom heim aftur var miði í póstkassanum um að kallinn hefði komið kl. 8.50!!! Dííísuss hvað ég varð pirruð þegar ég sá miðann...

Ég átti mjög góðan afmælisdag á sunnudaginn. Súpan heppnaðist með eindæmum vel og allir fóru saddir og ánægðir heim til sín seinnipartinn (eða það held ég alla vega).
Helgi er mikið búinn að vesenast í bílamálum undanfarna daga og bauð í eina Mözdu 626 station, árgerð 2000, fyrir helgi. Ef allt gengur að óskum fáum við bílinn í kvöld.... Helgi fer sem sagt beint eftir vinnu að skrifa undir. Það verður sko notalegt að komast á bíl aftur. Við erum sko búin að vera rosa dugleg að vera bíllaus svona lengi.... en það gengur víst ekki lengur. Í kvöld ætlum við að halda upp á þennan áfanga og fara á rúntinn á nýja bílnum og kaupa okkur hamborgara (nammi namm).

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Vona að þið séuð úti að rúnta núna!! Alla vega til hamingju með bílinn!! (vonandi)
Kv Munda
Nafnlaus sagði…
Til lukku með bílinn og hamborgarana! hehe
Kv. Guðrún
Sara sagði…
jújú - takk takk. Maginn var fylltur af hamborgara og frönskum í gær og nú stendur nýr bíll í innkeyrslunni :oD
Sólrún sagði…
Til hamingju með bílinn!

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Arnar er í heimsókn hjá okkur núna
Aftur mætt á bloggið! Þá er Íslandsförinni lokið og ég hef nógan tíma til að sitja yfir þessu bloggi aftur. Það var nú mjög gott að koma heim aftur en þó líka doldið einmanalegt þegar ég fór með Fannar á leikskólann í gær..... aftur orðin ein! Edda vinkona er komin á fullt í vinnu þannig að það er ekki hægt að bögga hana lengur yfir daginn.... það er þó stutt í nýja fjölskyldumeðliminn þannig að það verður bráðum nóg að gera. Helgi er á fullu núna að pæla í bílakaupum.... ég kann ekkert á þessi mál þannig að hann grúskar einn í þessu - hann sýnir mér samt myndir bara svona til að fá samþykki mitt hehehe. Skilyrðin eru þó þau að við kaupum sjálfskiptan station bíl með loftkælingu. Erum með einn Opel Omega í sigtinu núna og fer hann líklega að skoða hann á morgunn.... spennandi! Það er strax búið að bóka gistipláss hjá okkur í febrúar.... endalaus gestagangur hjá okkur :) en það eru Raggi og Munda sem ætla að kíkja til okkar. Hlökkum að sjálfsögðu til að fá þau í heimsókn....
Eins og þið flest líklega vitið er litla prinsessan fædd.... lítil snúlla sem hefur fengið nafnið Sandra Ósk. Hún ákvað að drífa sig í heiminn aðfaranótt 3. október. Hún var að flýta sér svo mikið að ljósmóðirin sem tók á móti henni náði ekki einu sinni að skrá mig inn á fæðingardeildina áður en hún fæddist. Þessar ljósmæður verða alltaf jafn hissa hversu fljót þessi börn mín eru að koma í heiminn..... Fannar er rosalega stoltur af systur sinni. Nefnir nokkrum sinnum á dag hversu lítil og sæt honum finnst hún. Viktor aftur á móti hefur verið í smá baráttu um athygli en virðist þó vera farinn að sætta sig við hlutina núna. Hann er samt voða góður við hana og vill endalaust knúsa og kyssa hana. Allt gengur vel að öðru leyti. Sandra drekkur vel og sefur mikið.... alveg eins og það á að vera þegar maður er svona pínulítill. Hún er rosalega vær og góð.... algjör snúlla :) Fyrsta baðið - 6 daga gömul