Fara í aðalinnihald
Nýr bíll = æðislegt
Það er svooo ljúft að vera komin á bíl. Ég er að kynnast götum borgarinnar upp á nýtt ;) Ég villtist í fyrsta skipti í gær.... var á leið til Eddu vinkonu og keyrði beint í gegnum gatnamót þar sem ég átti víst að taka hægri beygju. Komst þó heim til hennar heil á húfi á ekki svo löngum tíma hehe.
Fyrsta IKEA ferðin var tekin á nýja bílnum um helgina. Keyptum kommóðu og skiptiborð. Ég sat svo sveitt yfir IKEA leiðbeiningum í gær.... svo stolt af sjálfum mér að hafa komið þessum hlutum saman.

Fannar fer á skauta með leikskólanum sínum í dag. Hann var ekkert smá spenntur.... á reyndar allt of stóra skauta en við redduðum því með extra þykkum sokkum. Hann er alltaf jafn kátur á leikskólanum en aftur á móti er hegðun hans heima fyrir aðeins að breytast. Hann hangir í okkur öllum stundum og á mjög erfitt með að gleyma sér í einhverjum leik eins og hann var svo vanur. Við höldum að það sé vegna komu nýja barnsins enda erum við farin að undirbúa ýmislegt og hann finnur pottþétt fyrir því.

Ummæli

Sara sagði…
Verð logguð inn í kvöld.
Nafnlaus sagði…
Frábært að heyra með bílinn. Fannar er líka að komast á þennan "skemmtilega" sex ára aldur. Hlökkum til að koma, nú fer maður að telja í dögum.
KV Munda
P.s. eins gott að þú verðir með gatnakerfið á hreinu þá!!!
Sara sagði…
Hehe - takmarkið er einmitt að rata út á lestarstöð áður en þið komið ;o) Þið ætlið nefnilega að taka flugvallarlestina inn í Stokkhólm (gleymdi ég að segja ykkur frá því hehe?).
Nafnlaus sagði…
Það er sko ekki málið, bara gaman að því!!!
Kv Munda
Nafnlaus sagði…
Hmmm, hvað verðum við að gera eftir 2. vikur? :-) Hlakka til.
Kv Munda

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Arnar er í heimsókn hjá okkur núna
Aftur mætt á bloggið! Þá er Íslandsförinni lokið og ég hef nógan tíma til að sitja yfir þessu bloggi aftur. Það var nú mjög gott að koma heim aftur en þó líka doldið einmanalegt þegar ég fór með Fannar á leikskólann í gær..... aftur orðin ein! Edda vinkona er komin á fullt í vinnu þannig að það er ekki hægt að bögga hana lengur yfir daginn.... það er þó stutt í nýja fjölskyldumeðliminn þannig að það verður bráðum nóg að gera. Helgi er á fullu núna að pæla í bílakaupum.... ég kann ekkert á þessi mál þannig að hann grúskar einn í þessu - hann sýnir mér samt myndir bara svona til að fá samþykki mitt hehehe. Skilyrðin eru þó þau að við kaupum sjálfskiptan station bíl með loftkælingu. Erum með einn Opel Omega í sigtinu núna og fer hann líklega að skoða hann á morgunn.... spennandi! Það er strax búið að bóka gistipláss hjá okkur í febrúar.... endalaus gestagangur hjá okkur :) en það eru Raggi og Munda sem ætla að kíkja til okkar. Hlökkum að sjálfsögðu til að fá þau í heimsókn....
Eins og þið flest líklega vitið er litla prinsessan fædd.... lítil snúlla sem hefur fengið nafnið Sandra Ósk. Hún ákvað að drífa sig í heiminn aðfaranótt 3. október. Hún var að flýta sér svo mikið að ljósmóðirin sem tók á móti henni náði ekki einu sinni að skrá mig inn á fæðingardeildina áður en hún fæddist. Þessar ljósmæður verða alltaf jafn hissa hversu fljót þessi börn mín eru að koma í heiminn..... Fannar er rosalega stoltur af systur sinni. Nefnir nokkrum sinnum á dag hversu lítil og sæt honum finnst hún. Viktor aftur á móti hefur verið í smá baráttu um athygli en virðist þó vera farinn að sætta sig við hlutina núna. Hann er samt voða góður við hana og vill endalaust knúsa og kyssa hana. Allt gengur vel að öðru leyti. Sandra drekkur vel og sefur mikið.... alveg eins og það á að vera þegar maður er svona pínulítill. Hún er rosalega vær og góð.... algjör snúlla :) Fyrsta baðið - 6 daga gömul