Fara í aðalinnihald

drengur fæddur


Þá er ég aftur mætt við tölvuna.... ekki jafn mikill tími til þess þessa dagana. Fyrir ykkur sem ekki nú þegar vitið nýjustu fréttirnar, þá kom lítill drengur í heiminn aðfaranótt laugardags 26. febrúar. Lítli snúðurinn hefur fengið nafnið Viktor Snær og er voða fallegur að mati foreldra sinna :) Allt gengur vel.... hann drekkur eins og herforingi og er strax farinn að þyngjast.

Fannar, stóri bróðir, er rosa stoltur og nefnir reglulega hvað honum finnst sá litli vera sætur. Hann er svo duglegur.... alveg hættur að koma upp í til okkar á nóttunni og virðist alveg sáttur við það.

Við fengum þær fréttir á leikskólanum í dag að það hefði komið heimsókn frá Örby skola og að það væri búið að setja Fannar í bekk með fimm öðrum strákum sem hann þekkir af leikskólanum. Mér finnst mjög skrítin tilhugsun að litli.... stóri (!) strákurinn minn sé að byrja í skóla í haust.

Fyrstu gestirnir frá Íslandi koma eftir viku. Jamm - tengdamamma og Nonni koma á föstudaginn í næstu viku. Ég er voða spennt að fá þau í heimsókn. Helgi verður meira að segja í fríi - alveg frábært.

Jæja - erum að fá gesti.... kveð að sinni.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Til hamingju aftur, mér finnst hann líka voða sætur (af myndunum að dæma).
Vissi nú að Fannar myndi ekki klikka á þessu hann er svo duglegur. Gott að hann fær að vera með þeim sem hann þekkir í bekk.
Mæli með sama matseðili fyrir Ernu og Nonna og við fengum, klikkar ekki!!
Kveðja Munda
Nafnlaus sagði…
Já litlu börnin stækka og fara í skóla! Bíddu bara þangað til þú átt ekki einu sinni leikskólabarn, það er skrýtin tilhugsun.
Ummmmmmm matseðillinn "okkar" .... fæ bara vatn í munninn :)
g

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Arnar er í heimsókn hjá okkur núna
Aftur mætt á bloggið! Þá er Íslandsförinni lokið og ég hef nógan tíma til að sitja yfir þessu bloggi aftur. Það var nú mjög gott að koma heim aftur en þó líka doldið einmanalegt þegar ég fór með Fannar á leikskólann í gær..... aftur orðin ein! Edda vinkona er komin á fullt í vinnu þannig að það er ekki hægt að bögga hana lengur yfir daginn.... það er þó stutt í nýja fjölskyldumeðliminn þannig að það verður bráðum nóg að gera. Helgi er á fullu núna að pæla í bílakaupum.... ég kann ekkert á þessi mál þannig að hann grúskar einn í þessu - hann sýnir mér samt myndir bara svona til að fá samþykki mitt hehehe. Skilyrðin eru þó þau að við kaupum sjálfskiptan station bíl með loftkælingu. Erum með einn Opel Omega í sigtinu núna og fer hann líklega að skoða hann á morgunn.... spennandi! Það er strax búið að bóka gistipláss hjá okkur í febrúar.... endalaus gestagangur hjá okkur :) en það eru Raggi og Munda sem ætla að kíkja til okkar. Hlökkum að sjálfsögðu til að fá þau í heimsókn....
Eins og þið flest líklega vitið er litla prinsessan fædd.... lítil snúlla sem hefur fengið nafnið Sandra Ósk. Hún ákvað að drífa sig í heiminn aðfaranótt 3. október. Hún var að flýta sér svo mikið að ljósmóðirin sem tók á móti henni náði ekki einu sinni að skrá mig inn á fæðingardeildina áður en hún fæddist. Þessar ljósmæður verða alltaf jafn hissa hversu fljót þessi börn mín eru að koma í heiminn..... Fannar er rosalega stoltur af systur sinni. Nefnir nokkrum sinnum á dag hversu lítil og sæt honum finnst hún. Viktor aftur á móti hefur verið í smá baráttu um athygli en virðist þó vera farinn að sætta sig við hlutina núna. Hann er samt voða góður við hana og vill endalaust knúsa og kyssa hana. Allt gengur vel að öðru leyti. Sandra drekkur vel og sefur mikið.... alveg eins og það á að vera þegar maður er svona pínulítill. Hún er rosalega vær og góð.... algjör snúlla :) Fyrsta baðið - 6 daga gömul