Fara í aðalinnihald

gestir og tónleikar

Samviskan mín var aðeins farin að pikka í mig og sagði mér að ég hefði ekki bloggað síðan á laugardag. Þá er ekki annað að gera en að blogga smá. Það er nú svo sem ekki margt í fréttum.... kannski ástæðan fyrir bloggleysið! Viktor fór i þriggja mánaða skoðun í gær. Var viktaður (6620 gr.), mældur (63 cm.) og fékk sprautu. Ég var svo búin að búast við hita og pirringi í gærkvöldi en litli kallinn var bara hinn hressasti.

Mamma og Guðlaug koma í dag og svo kemur pabbi á morgun (fékk nú bara að vita í gærkvöldi að hann kæmi líka - skemmtilegur glaðningur það :). Ég er auðvitað voða spennt að fá liðið til mín. Ég er búin að þrífa húsið hátt og lágt (ekki bara vegna þess að það eru að koma gestir.... heldur vegna þess að það virkilega þurfti að þrífa!). Það tók mig þrjá daga að þrífa húsið..... ég kom auðvitað ekki miklu í verk nema þegar Viktor svaf hehe.

Á morgun stefnum við á Kent tónleika. Við Helgi förum bæði ásamt Guðlaugu, Eddu, Mårten og fleira góðu fólki. Mamma og pabbi passa gæjana mína á meðan.... ekki amalegt að fá tvær barnapíur frá Íslandi til að passa fyrir sig hehe ;)

Jæja best að fá sér morgunmat á meðan Viktor sefur morgunlúrinn sinn..... Later.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Góða skemmtun með gestunum. Þau fá aðeins hlýrra veður en við!!!
Hér er þvílík blíða líka sko ;-)

Hreiðar og Steinunn útskrifuðust formlega í dag af leikskóla, allt að gerast. Verða þó til 12. júlí. Allt að gerast.
KV Munda
Guðlaug sagði…
Ég var að setja inn nýjar myndir, loksins!!!

Sakna ykkar,
litla sys

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Arnar er í heimsókn hjá okkur núna
Aftur mætt á bloggið! Þá er Íslandsförinni lokið og ég hef nógan tíma til að sitja yfir þessu bloggi aftur. Það var nú mjög gott að koma heim aftur en þó líka doldið einmanalegt þegar ég fór með Fannar á leikskólann í gær..... aftur orðin ein! Edda vinkona er komin á fullt í vinnu þannig að það er ekki hægt að bögga hana lengur yfir daginn.... það er þó stutt í nýja fjölskyldumeðliminn þannig að það verður bráðum nóg að gera. Helgi er á fullu núna að pæla í bílakaupum.... ég kann ekkert á þessi mál þannig að hann grúskar einn í þessu - hann sýnir mér samt myndir bara svona til að fá samþykki mitt hehehe. Skilyrðin eru þó þau að við kaupum sjálfskiptan station bíl með loftkælingu. Erum með einn Opel Omega í sigtinu núna og fer hann líklega að skoða hann á morgunn.... spennandi! Það er strax búið að bóka gistipláss hjá okkur í febrúar.... endalaus gestagangur hjá okkur :) en það eru Raggi og Munda sem ætla að kíkja til okkar. Hlökkum að sjálfsögðu til að fá þau í heimsókn....
Eins og þið flest líklega vitið er litla prinsessan fædd.... lítil snúlla sem hefur fengið nafnið Sandra Ósk. Hún ákvað að drífa sig í heiminn aðfaranótt 3. október. Hún var að flýta sér svo mikið að ljósmóðirin sem tók á móti henni náði ekki einu sinni að skrá mig inn á fæðingardeildina áður en hún fæddist. Þessar ljósmæður verða alltaf jafn hissa hversu fljót þessi börn mín eru að koma í heiminn..... Fannar er rosalega stoltur af systur sinni. Nefnir nokkrum sinnum á dag hversu lítil og sæt honum finnst hún. Viktor aftur á móti hefur verið í smá baráttu um athygli en virðist þó vera farinn að sætta sig við hlutina núna. Hann er samt voða góður við hana og vill endalaust knúsa og kyssa hana. Allt gengur vel að öðru leyti. Sandra drekkur vel og sefur mikið.... alveg eins og það á að vera þegar maður er svona pínulítill. Hún er rosalega vær og góð.... algjör snúlla :) Fyrsta baðið - 6 daga gömul