Fannar fór í heimsókn í skólann sinn í gær. Einn starfsmaður af Vi som växer fór með alla krakkana sem byrja í skólanum í haust og skildi þau eftir í einn og hálfan tíma. Ég hafði á tilfinningunni að Fannar kviði aðeins fyrir því að fara. Allt fór þetta nú samt vel.... þegar ég spurði Fannar hvernig hefði verið í skólanum sagði hann: "það var mjög skemmtilegt... skemmtilegra en ég bjóst við". Hann var nú samt búinn að gleyma því sem þau gerðu í skólanum þegar ég spurði hann að því :oD
Langaði að henda inn nokkrum myndum.... Krakkarnir keyptu sér ný rúm. Helgi að setja saman rúmið hennar Söndru Tillbúið... eða næstum. Vantar bara skúffurnar undir rúmið. Sandra mjög sátt Næsta rúm sett saman Viktor líka sáttur. Hér vantar líka skúffurnar undir rúmið Sandra á sínum fyrsta leik vorsins. Missteig sig mjög ílla. Var mánuð að jafna sig en er núna komin á fullt i fótboltanum aftur Ég skaust i helgarferð til Köben á kóramót íslenskra kóra i Evrópu. Kórarnir æfðu saman och síðan voru haldnir kórtónleikar i kirkju við Strikið. Mótið endaði svo med svaka partýi um kvöldið Hér er hluti kórsins að fá sér bjór í einni pásunni Pabbi og Guðlaug sungu med Bergen kórnum. Hrikalega gaman að hitta þau .... með Völu, vínkonu í kórnum
Ummæli