Fara í aðalinnihald

Viktor hefur mikinn áhuga á Felix. Felix tekur þessari athygli með einstakri ró og leyfir drengnum aðeins að koma við sig :) Posted by Picasa

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Hehe Felix alltaf jafn notalegur að sjá. Sé að hann hefur ekki verið settur á "dæet"-kúr :) Er hann ekki bara stærri en Viktor Snær?
Arnar Thor sagði…
Hvað finnst Felix sjálfum um þetta?

kveðja,

Arnar Thor
Sara sagði…
Guðrún! Ertu að segja að Felix sé feitur?! Mér finnst hann ekkert feitur - bara doldið mjúkur ;) Annars er nú drengurinn orðinn stærri og þyngri en kötturinn.... þótt ótrúlegt sé hehe :)
Nafnlaus sagði…
Tja, getum auðvitað farið fínt í þetta og sagt að Felix sé dúnmjúkur. En mér finnst hann reyndar krúttleg fitubolla, minnir mig óneitanlega á Garfield :D og þar er nú ekki leiðum að líkjast.

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Arnar er í heimsókn hjá okkur núna
Aftur mætt á bloggið! Þá er Íslandsförinni lokið og ég hef nógan tíma til að sitja yfir þessu bloggi aftur. Það var nú mjög gott að koma heim aftur en þó líka doldið einmanalegt þegar ég fór með Fannar á leikskólann í gær..... aftur orðin ein! Edda vinkona er komin á fullt í vinnu þannig að það er ekki hægt að bögga hana lengur yfir daginn.... það er þó stutt í nýja fjölskyldumeðliminn þannig að það verður bráðum nóg að gera. Helgi er á fullu núna að pæla í bílakaupum.... ég kann ekkert á þessi mál þannig að hann grúskar einn í þessu - hann sýnir mér samt myndir bara svona til að fá samþykki mitt hehehe. Skilyrðin eru þó þau að við kaupum sjálfskiptan station bíl með loftkælingu. Erum með einn Opel Omega í sigtinu núna og fer hann líklega að skoða hann á morgunn.... spennandi! Það er strax búið að bóka gistipláss hjá okkur í febrúar.... endalaus gestagangur hjá okkur :) en það eru Raggi og Munda sem ætla að kíkja til okkar. Hlökkum að sjálfsögðu til að fá þau í heimsókn....
Eins og þið flest líklega vitið er litla prinsessan fædd.... lítil snúlla sem hefur fengið nafnið Sandra Ósk. Hún ákvað að drífa sig í heiminn aðfaranótt 3. október. Hún var að flýta sér svo mikið að ljósmóðirin sem tók á móti henni náði ekki einu sinni að skrá mig inn á fæðingardeildina áður en hún fæddist. Þessar ljósmæður verða alltaf jafn hissa hversu fljót þessi börn mín eru að koma í heiminn..... Fannar er rosalega stoltur af systur sinni. Nefnir nokkrum sinnum á dag hversu lítil og sæt honum finnst hún. Viktor aftur á móti hefur verið í smá baráttu um athygli en virðist þó vera farinn að sætta sig við hlutina núna. Hann er samt voða góður við hana og vill endalaust knúsa og kyssa hana. Allt gengur vel að öðru leyti. Sandra drekkur vel og sefur mikið.... alveg eins og það á að vera þegar maður er svona pínulítill. Hún er rosalega vær og góð.... algjör snúlla :) Fyrsta baðið - 6 daga gömul