Fara í aðalinnihald

tími fyrir blogg

Jæja elskurnar.... búin að sakna mín?

Við erum búin að hafa það rosa gott undanfarna daga. Amma og afi í heimsókn. Það er sko ekkert stress á gömlu hjónunum.... ég hef meiri áhyggjur yfir að þeim leiðist heldur en að ég sé að keyra þau út :) Þau skelltu sér áðan með strætó í Farsta Centrum, það er frekar leiðinlegt veður í dag og því tilvalið að eyða deginum í verslunarmiðstöð hehe. Um helgina fórum við niður í miðbæ og löbbuðum rosa hring. Þau þurfa eiginlega að fara þangað aftur því þau náðu náttúrulega ekki að sjá nema smá brot af borginni. Við höfum svo verið nokkuð dugleg að spila á kvöldin.... búin að taka kana tvisvar..... ægilegt stuð.

Fyrsta tönnin hans Viktors er komin. Hann bítur og nagar allt sem hann kemst í drengurinn. Svo er hann aðeins að byrja að skríða.... samt doldið erfitt því parketið er nú svo sleipt :) Hann rýkur af stað í hvert skipti sem hann kemur auga á rafmangsnúru!!!!...... annað hvort með því að toga sig áfram á höndunum (sem virðist nú vera aðeins auðveldara ;) eða með því að skríða. Það má því ekki líta af honum.

Eins og hefur komið fram hjá Helga þá er Fannar búinn að missa fyrstu barnatönnina.... voða stoltur. Honum fannst nú aftur verra að hann týndi tönninni um kvöldið áður en hann fékk tækifæri til að setja hana undir koddann. En þegar hann var búinn að segja við sjálfan sig að hann ætti eftir að missa fullt af tönnum í viðbót þá varð þetta bara allt í lagi :)

Best að hafa þetta ekki lengra núna - lifið í lukku en ekki í krukku :)

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Arnar er í heimsókn hjá okkur núna
Aftur mætt á bloggið! Þá er Íslandsförinni lokið og ég hef nógan tíma til að sitja yfir þessu bloggi aftur. Það var nú mjög gott að koma heim aftur en þó líka doldið einmanalegt þegar ég fór með Fannar á leikskólann í gær..... aftur orðin ein! Edda vinkona er komin á fullt í vinnu þannig að það er ekki hægt að bögga hana lengur yfir daginn.... það er þó stutt í nýja fjölskyldumeðliminn þannig að það verður bráðum nóg að gera. Helgi er á fullu núna að pæla í bílakaupum.... ég kann ekkert á þessi mál þannig að hann grúskar einn í þessu - hann sýnir mér samt myndir bara svona til að fá samþykki mitt hehehe. Skilyrðin eru þó þau að við kaupum sjálfskiptan station bíl með loftkælingu. Erum með einn Opel Omega í sigtinu núna og fer hann líklega að skoða hann á morgunn.... spennandi! Það er strax búið að bóka gistipláss hjá okkur í febrúar.... endalaus gestagangur hjá okkur :) en það eru Raggi og Munda sem ætla að kíkja til okkar. Hlökkum að sjálfsögðu til að fá þau í heimsókn....
Eins og þið flest líklega vitið er litla prinsessan fædd.... lítil snúlla sem hefur fengið nafnið Sandra Ósk. Hún ákvað að drífa sig í heiminn aðfaranótt 3. október. Hún var að flýta sér svo mikið að ljósmóðirin sem tók á móti henni náði ekki einu sinni að skrá mig inn á fæðingardeildina áður en hún fæddist. Þessar ljósmæður verða alltaf jafn hissa hversu fljót þessi börn mín eru að koma í heiminn..... Fannar er rosalega stoltur af systur sinni. Nefnir nokkrum sinnum á dag hversu lítil og sæt honum finnst hún. Viktor aftur á móti hefur verið í smá baráttu um athygli en virðist þó vera farinn að sætta sig við hlutina núna. Hann er samt voða góður við hana og vill endalaust knúsa og kyssa hana. Allt gengur vel að öðru leyti. Sandra drekkur vel og sefur mikið.... alveg eins og það á að vera þegar maður er svona pínulítill. Hún er rosalega vær og góð.... algjör snúlla :) Fyrsta baðið - 6 daga gömul