Fara í aðalinnihald
Það er sko fullt búið að gerast hjá okkur síðan síðast. Nonni er búinn að koma í heimsókn og Guðlaug og Svenni líka. Nonni stoppaði nú reyndar bara yfir einn dag en það var samt frábært að fá hann í heimsókn. Hann tók massa af myndum af drengjunum, borðaði kvöldmat með okkur og fór svo með kvöldvél til Íslands. Guðlaug og Svenni voru hjá okkur frá föstudagskvöldi og fram á miðvikudagsmorgun. Alveg frábært. Fórum nokkrar ferðir í bæinn, fórum líka í Farsta Centrum og svo fylgdust þau með Fannari á fótboltaæfingu. Guðlaug er nú búin að skrifa nákvæmari ferðalýsingu á blogginu sínu - kíkið bara þangað.

Fannar byrjaði í sundskóla á fimmtudaginn síðasta. Hann var ekkert stressaður að fara... hlakkaði bara til og var voða spenntur. Hann hefur aldrei verið vitund vatnshræddur og fannst okkur nú tími til kominn að hann læri að synda. Núna telur hann niður dagana bæði fyrir fótboltaæfingar og sundskólann - gaman að þessu :)

Nú erum við loksins búin að fá að vita að Helgi fær frí yfri jól og áramót. Við stefnum því öll á að koma heim til Íslands :) Við erum ekki enn búin að kaupa miða en þetta gerist vonandi fljótlega - ekki seinna vænna. Ég er voða spennt að koma heim enda heilt ár síðan síðast.

Best að enda þetta á þessum góðu fréttum ;)
Góða helgi.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
hlakka til að sjá ykkur um jólin og sérstaklega Fannar og Viktor :)

Gutti og Magga :)
Nafnlaus sagði…
Hlökkum til að hitta ykkur um jólin, gerum eitthvað sniðugt.
kv Munda og co

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Arnar er í heimsókn hjá okkur núna
Aftur mætt á bloggið! Þá er Íslandsförinni lokið og ég hef nógan tíma til að sitja yfir þessu bloggi aftur. Það var nú mjög gott að koma heim aftur en þó líka doldið einmanalegt þegar ég fór með Fannar á leikskólann í gær..... aftur orðin ein! Edda vinkona er komin á fullt í vinnu þannig að það er ekki hægt að bögga hana lengur yfir daginn.... það er þó stutt í nýja fjölskyldumeðliminn þannig að það verður bráðum nóg að gera. Helgi er á fullu núna að pæla í bílakaupum.... ég kann ekkert á þessi mál þannig að hann grúskar einn í þessu - hann sýnir mér samt myndir bara svona til að fá samþykki mitt hehehe. Skilyrðin eru þó þau að við kaupum sjálfskiptan station bíl með loftkælingu. Erum með einn Opel Omega í sigtinu núna og fer hann líklega að skoða hann á morgunn.... spennandi! Það er strax búið að bóka gistipláss hjá okkur í febrúar.... endalaus gestagangur hjá okkur :) en það eru Raggi og Munda sem ætla að kíkja til okkar. Hlökkum að sjálfsögðu til að fá þau í heimsókn....
Eins og þið flest líklega vitið er litla prinsessan fædd.... lítil snúlla sem hefur fengið nafnið Sandra Ósk. Hún ákvað að drífa sig í heiminn aðfaranótt 3. október. Hún var að flýta sér svo mikið að ljósmóðirin sem tók á móti henni náði ekki einu sinni að skrá mig inn á fæðingardeildina áður en hún fæddist. Þessar ljósmæður verða alltaf jafn hissa hversu fljót þessi börn mín eru að koma í heiminn..... Fannar er rosalega stoltur af systur sinni. Nefnir nokkrum sinnum á dag hversu lítil og sæt honum finnst hún. Viktor aftur á móti hefur verið í smá baráttu um athygli en virðist þó vera farinn að sætta sig við hlutina núna. Hann er samt voða góður við hana og vill endalaust knúsa og kyssa hana. Allt gengur vel að öðru leyti. Sandra drekkur vel og sefur mikið.... alveg eins og það á að vera þegar maður er svona pínulítill. Hún er rosalega vær og góð.... algjör snúlla :) Fyrsta baðið - 6 daga gömul