Fara í aðalinnihald

jóla jóla

Ég er komin í svo mikið jólaskap. Við fjölskyldan bökuðum tvær smákökutegundir um síðustu helgi og hlustuðum á jólalög - ekki aftur snúið þá :) Við Helgi erum meira að segja löngu búin að kaupa jólagjöfina hans Fannars..... ég hef ALDREI keypt jólagjöf svona snemma. Og núna er ég alveg einstaklega óþolinmóð og vil helst vera búin með öll jólagjafakaupin.... bara eitt vandamál og það er að ákveða hvað á að vera í pökkunum hehe!! Svolítið biluð? Já ég veit.

Spennan er orðin mikil fyrir Íslandsferð. Mér líður eins og litlum krakka á aðfangadag sem getur ekki beðið eftir að fá að opna pakkana. Helgi verður kominn í feðraorlof þegar við förum. Hann verður því frá vinnu fram í byrjun mars og það finnst mér ekki slæmt hehe ;)

Ég fór í foreldraviðtal í skólanum hans Fannars í gær. Kennarinn hans hafði bara jákvæða hluti að segja um hann. Hann er áhugasamur, er duglegur að taka þátt í samræðum (talar mikið hehe :oD ) og semur vel við hina krakkana í bekknum. Hún tók líka fram að þetta væri mjög góður bekkur - ekki verið neitt vesen. Mér mun þykja mjög leiðinlegt ef Fannar þarf að skipta um skóla í haust en það þýðir víst lítið að spá í það núna.... það verður bara að koma í ljós.

Hef þetta ekki lengra í bili, kveð að sinni.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Arnar er í heimsókn hjá okkur núna
Aftur mætt á bloggið! Þá er Íslandsförinni lokið og ég hef nógan tíma til að sitja yfir þessu bloggi aftur. Það var nú mjög gott að koma heim aftur en þó líka doldið einmanalegt þegar ég fór með Fannar á leikskólann í gær..... aftur orðin ein! Edda vinkona er komin á fullt í vinnu þannig að það er ekki hægt að bögga hana lengur yfir daginn.... það er þó stutt í nýja fjölskyldumeðliminn þannig að það verður bráðum nóg að gera. Helgi er á fullu núna að pæla í bílakaupum.... ég kann ekkert á þessi mál þannig að hann grúskar einn í þessu - hann sýnir mér samt myndir bara svona til að fá samþykki mitt hehehe. Skilyrðin eru þó þau að við kaupum sjálfskiptan station bíl með loftkælingu. Erum með einn Opel Omega í sigtinu núna og fer hann líklega að skoða hann á morgunn.... spennandi! Það er strax búið að bóka gistipláss hjá okkur í febrúar.... endalaus gestagangur hjá okkur :) en það eru Raggi og Munda sem ætla að kíkja til okkar. Hlökkum að sjálfsögðu til að fá þau í heimsókn....
Eins og þið flest líklega vitið er litla prinsessan fædd.... lítil snúlla sem hefur fengið nafnið Sandra Ósk. Hún ákvað að drífa sig í heiminn aðfaranótt 3. október. Hún var að flýta sér svo mikið að ljósmóðirin sem tók á móti henni náði ekki einu sinni að skrá mig inn á fæðingardeildina áður en hún fæddist. Þessar ljósmæður verða alltaf jafn hissa hversu fljót þessi börn mín eru að koma í heiminn..... Fannar er rosalega stoltur af systur sinni. Nefnir nokkrum sinnum á dag hversu lítil og sæt honum finnst hún. Viktor aftur á móti hefur verið í smá baráttu um athygli en virðist þó vera farinn að sætta sig við hlutina núna. Hann er samt voða góður við hana og vill endalaust knúsa og kyssa hana. Allt gengur vel að öðru leyti. Sandra drekkur vel og sefur mikið.... alveg eins og það á að vera þegar maður er svona pínulítill. Hún er rosalega vær og góð.... algjör snúlla :) Fyrsta baðið - 6 daga gömul