Fara í aðalinnihald

2006

Gleðilegt ár kæru vinir og fjölskylda.

Við erum í Kefló. Komum beint úr sveitinni í gær (bústað mömmu og pabba), æðislegt að vera þar. Ætlum að gista hér í Kefló það sem eftir er ferðarinnar enda svo hrikalega stutt eftir eitthvað. Síðasti dagur ársins fór vel fram hjá okkur. Borðuðum okkur stútfull af lambakjöti og öðru gómsætu stöffi. Fannar fékk að skjóta upp helling af sprengjum... hann var reyndar nokkuð smeykur (sem var bara gott :) en fannst þetta allt mjööög spennandi. Ég og Viktor horfðum á öll herlegheitin út um gluggann.... sá stutti vaknaði nefnilega korter í tólv.... svo mikil voru lætin :)

Það verður nóg að gera hjá okkur þessa síðustu daga okkar hér. Nokkrar heimsóknir á skyldulistanum, ætlum að vera dugleg að fara í sund og svo náttúrulega að eyða sem mestum tíma með fjölskyldunni.

Bless í bili.

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Hitt og þetta

Langaði að henda inn nokkrum myndum.... Krakkarnir keyptu sér ný rúm. Helgi að setja saman rúmið hennar Söndru Tillbúið... eða næstum. Vantar bara skúffurnar undir rúmið. Sandra mjög sátt Næsta rúm sett saman Viktor líka sáttur. Hér vantar líka skúffurnar undir rúmið Sandra á sínum fyrsta leik vorsins. Missteig sig mjög ílla. Var mánuð að jafna sig en er núna komin á fullt i fótboltanum aftur Ég skaust i helgarferð til Köben á kóramót íslenskra kóra i Evrópu. Kórarnir æfðu saman och síðan voru haldnir kórtónleikar i kirkju við Strikið. Mótið endaði svo med svaka partýi um kvöldið Hér er hluti kórsins að fá sér bjór í einni pásunni Pabbi og Guðlaug sungu med Bergen kórnum. Hrikalega gaman að hitta þau .... með Völu, vínkonu í kórnum

Viktor töffari

Viktor er búinn að byðja mig um að lita á sér hárið í nokkurn tíma. Ég lét loksins eftir! Hann var alveg með á hreinu hvernig hann vildi hafa hárið. Ég fylgdi því bara hans óskum og svei mér þá ef það tókst ekki bara ágætlega.... dæmið sjálf. Litli maðurinn er alla vega mjög ánægður :) Litun í gangi   Búið að klippa og lita Mjög sáttur Læt fylgja med eina mynd av heimasætunni tekin milli jóla og nýárs

Högskolepedagogik för handledare

Loksins er kúrsinn búinn. Búið að vera mikið að gera þessa haustönn en núna eftir á að hyggja var það þess virði. Nú er ég ótrúlega ánægð að ég skellti mér í þetta :) Ein af lestrar-stundunum í haust Dimma hélt mér selskap :)