Fara í aðalinnihald

Köben

Takk fyrir allar afmæliskveðjurnar elskurnar mínar. Ég fékk margar kveðjur og er það mér mikils virði. Knús knús :o*

Djammið á laugardag tókst alveg frábærlega vel. Ég er núna búin að svala fyllerísfíkn minni í bili og ætla að taka því rólega næstu vikurnar hehe. Við byrjuðum kvöldið á diskóbowling og fórum svo á veitingastað/skemmtistað og fegnum okkur gott að borða. Góður félagsskapur og hreint frábært kvöld - takk fyrir kvöldið stelpur.

Nú er ég aftur á móti stödd í Köben. Já - Guðlaug og Svenni voru líka hissa.... mjög hissa. Ég bankaði óvænt upp á hjá þeim klukkan 14 í dag. Þau eru rétt að jafna sig á áfallinu. Það vissu bara örfáir af því að ég ætlaði að skella mér enda algjörlega surprise ferð :) Mamma og pabbi koma svo í kvöld og ætlum við öll að vera hér hjá þeim fram yfir helgi.

Nú bíður mín rosa flott súkkulaði kaka og ætla ég ekki að láta bíða eftir mér.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Góða skemmtun í fallegu borginni!!
Kv Munda
Nafnlaus sagði…
Til hamingju með afmælið skvís:o)
Biðjum að heilsa famelíunni
Sólrún sagði…
Já til hamingju audda med ammmlið. :o)

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Hitt og þetta

Langaði að henda inn nokkrum myndum.... Krakkarnir keyptu sér ný rúm. Helgi að setja saman rúmið hennar Söndru Tillbúið... eða næstum. Vantar bara skúffurnar undir rúmið. Sandra mjög sátt Næsta rúm sett saman Viktor líka sáttur. Hér vantar líka skúffurnar undir rúmið Sandra á sínum fyrsta leik vorsins. Missteig sig mjög ílla. Var mánuð að jafna sig en er núna komin á fullt i fótboltanum aftur Ég skaust i helgarferð til Köben á kóramót íslenskra kóra i Evrópu. Kórarnir æfðu saman och síðan voru haldnir kórtónleikar i kirkju við Strikið. Mótið endaði svo med svaka partýi um kvöldið Hér er hluti kórsins að fá sér bjór í einni pásunni Pabbi og Guðlaug sungu med Bergen kórnum. Hrikalega gaman að hitta þau .... með Völu, vínkonu í kórnum

Viktor töffari

Viktor er búinn að byðja mig um að lita á sér hárið í nokkurn tíma. Ég lét loksins eftir! Hann var alveg með á hreinu hvernig hann vildi hafa hárið. Ég fylgdi því bara hans óskum og svei mér þá ef það tókst ekki bara ágætlega.... dæmið sjálf. Litli maðurinn er alla vega mjög ánægður :) Litun í gangi   Búið að klippa og lita Mjög sáttur Læt fylgja med eina mynd av heimasætunni tekin milli jóla og nýárs

Högskolepedagogik för handledare

Loksins er kúrsinn búinn. Búið að vera mikið að gera þessa haustönn en núna eftir á að hyggja var það þess virði. Nú er ég ótrúlega ánægð að ég skellti mér í þetta :) Ein af lestrar-stundunum í haust Dimma hélt mér selskap :)