Fara í aðalinnihald

steikjandi hiti

Það er svo mikil bongóblíða hér í Stokkhólmi núna. Sumarið er komið með stæl. Við keyptum heilan lambaskrokk hjá Íslandsfisk (kemur til okkar eftir mánuð). Það verður því nóg um íslensk lambakjöt á grillinu okkar í sumarblíðunni..... mmmm. Bara tvær vikur í pabba og mömmu. Gutti og Magga taka svo strax við gestahlutverkinu þegar þau fara heim. Æðislegt að gestavertíðin er byrjuð híhí :D Ég er mikið farin að hlakka til sumarfrísins. Við erum að spá í að leigja húsbíl/hjólhýsi og keyra jafnvel yfir til Danmerkur. Nennum ekki að fara með tjaldið enda mikið mál með eins árs gutta og ólétta konu í för ;)

Jamm, nú ætla ég að einbeita mér að því að sleikja upp sólina, svona síðustu mínúturnar áður en Viktor vaknar af hádegislúrnum.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
ég þarf sem sagt bara að pakka niður sumarfötum.... ég er byrjuð að telja niður dagana.... 14 dagar í köben og 16 daga þar til að við komum til ykkar í sólina :D

Kveðja Magga :)

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Hitt og þetta

Langaði að henda inn nokkrum myndum.... Krakkarnir keyptu sér ný rúm. Helgi að setja saman rúmið hennar Söndru Tillbúið... eða næstum. Vantar bara skúffurnar undir rúmið. Sandra mjög sátt Næsta rúm sett saman Viktor líka sáttur. Hér vantar líka skúffurnar undir rúmið Sandra á sínum fyrsta leik vorsins. Missteig sig mjög ílla. Var mánuð að jafna sig en er núna komin á fullt i fótboltanum aftur Ég skaust i helgarferð til Köben á kóramót íslenskra kóra i Evrópu. Kórarnir æfðu saman och síðan voru haldnir kórtónleikar i kirkju við Strikið. Mótið endaði svo med svaka partýi um kvöldið Hér er hluti kórsins að fá sér bjór í einni pásunni Pabbi og Guðlaug sungu med Bergen kórnum. Hrikalega gaman að hitta þau .... með Völu, vínkonu í kórnum

Viktor töffari

Viktor er búinn að byðja mig um að lita á sér hárið í nokkurn tíma. Ég lét loksins eftir! Hann var alveg með á hreinu hvernig hann vildi hafa hárið. Ég fylgdi því bara hans óskum og svei mér þá ef það tókst ekki bara ágætlega.... dæmið sjálf. Litli maðurinn er alla vega mjög ánægður :) Litun í gangi   Búið að klippa og lita Mjög sáttur Læt fylgja med eina mynd av heimasætunni tekin milli jóla og nýárs

Högskolepedagogik för handledare

Loksins er kúrsinn búinn. Búið að vera mikið að gera þessa haustönn en núna eftir á að hyggja var það þess virði. Nú er ég ótrúlega ánægð að ég skellti mér í þetta :) Ein af lestrar-stundunum í haust Dimma hélt mér selskap :)