Fara í aðalinnihald
Sumarfríið búið í bili.... Helgi byrjaði að vinna á sunnudaginn síðasta. Í síðustu frívikunni hittum við Mårten og Maju og litlu tvíburana þeirra. Þau komu og fengu kaffi og vöfflur hjá okkur og svo grilluðum við saman um kvöldið. Mjög notalegt. Þetta var á þriðjudeginum. Á fimmtudeginum fórum við síðan öll saman til Trosa - lítill bær ca. 60 km. sunnan við Stokkhólm. Röltum um bæinn, fórum á kaffihús og fengum okkur svo hádegismat saman.... og svo aftur á kaffihús :) Svona eiga frí að vera.
Sumarveðrið er alltaf jafn gott. Ekki gott fyrir bændur þó. Það hefur rignt svo lítið að uppskera er að þorna upp og beljurnar fá lítið gott að bíta. Ég kvarta nú samt ekki.... og vökva bara þennan litla grasblett sem við höfum með glöðu geði :)

Maja, Mårten og Hedda litla í mat hjá okkur.... gott veður eins og vanalega þannig að við borðuðum auðvitað úti :)


Allur hópurinn í göngutúr um Trosa


Feðgarnir að skoða bátana í Trosa


Viktor (sem tekur ekki snuddu sjálfur!) fannst mjög gaman að taka snudduna af tvíburunum og stinga henni svo inn aftur. Var kampakátur þegar hann var búinn að gera þetta og klappaði alltaf fyrir sjálfum sér. Sem betur fer eru þau vön þar sem þau eru alltaf að rífa snudduna af hvort öðru :)

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Arnar er í heimsókn hjá okkur núna
Aftur mætt á bloggið! Þá er Íslandsförinni lokið og ég hef nógan tíma til að sitja yfir þessu bloggi aftur. Það var nú mjög gott að koma heim aftur en þó líka doldið einmanalegt þegar ég fór með Fannar á leikskólann í gær..... aftur orðin ein! Edda vinkona er komin á fullt í vinnu þannig að það er ekki hægt að bögga hana lengur yfir daginn.... það er þó stutt í nýja fjölskyldumeðliminn þannig að það verður bráðum nóg að gera. Helgi er á fullu núna að pæla í bílakaupum.... ég kann ekkert á þessi mál þannig að hann grúskar einn í þessu - hann sýnir mér samt myndir bara svona til að fá samþykki mitt hehehe. Skilyrðin eru þó þau að við kaupum sjálfskiptan station bíl með loftkælingu. Erum með einn Opel Omega í sigtinu núna og fer hann líklega að skoða hann á morgunn.... spennandi! Það er strax búið að bóka gistipláss hjá okkur í febrúar.... endalaus gestagangur hjá okkur :) en það eru Raggi og Munda sem ætla að kíkja til okkar. Hlökkum að sjálfsögðu til að fá þau í heimsókn....
Eins og þið flest líklega vitið er litla prinsessan fædd.... lítil snúlla sem hefur fengið nafnið Sandra Ósk. Hún ákvað að drífa sig í heiminn aðfaranótt 3. október. Hún var að flýta sér svo mikið að ljósmóðirin sem tók á móti henni náði ekki einu sinni að skrá mig inn á fæðingardeildina áður en hún fæddist. Þessar ljósmæður verða alltaf jafn hissa hversu fljót þessi börn mín eru að koma í heiminn..... Fannar er rosalega stoltur af systur sinni. Nefnir nokkrum sinnum á dag hversu lítil og sæt honum finnst hún. Viktor aftur á móti hefur verið í smá baráttu um athygli en virðist þó vera farinn að sætta sig við hlutina núna. Hann er samt voða góður við hana og vill endalaust knúsa og kyssa hana. Allt gengur vel að öðru leyti. Sandra drekkur vel og sefur mikið.... alveg eins og það á að vera þegar maður er svona pínulítill. Hún er rosalega vær og góð.... algjör snúlla :) Fyrsta baðið - 6 daga gömul