Fara í aðalinnihald
Nú er ég komin 37 vikur..... það getur því allt gerst eftir viku. Ég er alveg sannfærð um að litla stelpan muni frekar koma fyrr en seinna. Viktor kom í heiminn í viku 39 og Fannar í viku 40. Ég er því ekki vön að vera að draga þetta eitthvað á langinn :)

Viktor er enn í aðlögun á leikskólanum. Þetta gengur allt ljómandi vel. Það er svo fyndið að fara með hann. Hann langar að fara en samt langar hann ekki að fara.... skiljiði hehe. Hann mótmælir náttúrulega hástöfum þegar ég fer en það varir stutt samkvæmt leikskólakennaranum. Í dag fær hann að vera yfir hádegislúrinn líka.... það verður því spennandi að vita hvernig það gengur.

Fannar er alltaf jafn ánægður í skólanum. Við erum að reyna að koma á rútínu á heimilinu varðandi heimalærdóminn..... á það til að gleymast fram á síðustu stundu sem er ekki gott fyrir hann. Hann er byrjaður að lesa og skrifa.... mjög duglegur og auðvitað ægilega stoltur af sjálfum sér líka :) Í síðustu viku var hlaupadagur í skólanum. Drengurinn hljóp hvorki meira né minna en 4,5 km. Algjör hlaupagikkur.... aldrei að vita nema að hann verði eins og mamma sín ;)

Lítið annað að frétta svo sem. Nema kannski það að tengdamamma og Björn, afi Helga, ætla að koma til okkar í byrjun nóvember. Verður MJÖG gaman að fá þau til okkar... hlakka mikið til. Og Guðlaug! Það er enginn búinn að bóka gestaherbergið 16. október enn.....

Þar til næst, bless bless.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Hæ Sara mín! Mikið verður gaman að fá litla stelpuskottið :). Fylgjumst spennt með héðan. Þú nýtir síðustu dagana í að hvílast á meðan strákarnir eru að heiman! Kveðja frá Kefló,
Guðrún
Gróa sagði…
Elsku frænka mín!
Vona að allt gangi vel hjá ykkur öllum. Hlakka til að fá fréttir af lítilli frænku!!!!
Bestu kveðjur héðan af Flókagötunni. Gróa.
Nafnlaus sagði…
Til hamingju með litlu prinsessuna. Nú verður þú að fara að æfa fléttutæknina ;-)
kv Munda og co

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Jólaskapið komið Hér er búið að snjóa í alla nótt og snjóar enn..... þar að auki alveg blankalogn þannig að það getur eiginlega ekki orðið jólalegra. Fannar er nú þegar búinn að henda tveimur snjóboltum í mig og var planið hans í dag að búa til fleiri. Það verður örugglega rosa stuð hjá honum í leikskólanum í dag :) Þetta barn stækkar svo mikið að hann er löngu vaxinn upp úr snjóbuxunum sínum síðan í fyrra vetur.... þær ná honum næstum upp á miðja kálfa! Það er sem sagt kominn tími til að við foreldrarnir kaupum handa honum nýjar kuldabuxur svo hann sé nú almennilega klæddur drengurinn.... ekki seinna vænna nú þegar snjórinn er kominn. Helgi var á næturvakt í nótt. Fannar tilkynnti við kvöldmatarborðið í gær að það væri bara gott að pabbi sinn væri að fara að vinna. Hann veit nefnilega að hann fær að kúra hjá mömmu sinni þegar pabbi hans er á vakt (þó hann hafi ekki nefnt það í framhaldinu :o)
Aftur mætt á bloggið! Þá er Íslandsförinni lokið og ég hef nógan tíma til að sitja yfir þessu bloggi aftur. Það var nú mjög gott að koma heim aftur en þó líka doldið einmanalegt þegar ég fór með Fannar á leikskólann í gær..... aftur orðin ein! Edda vinkona er komin á fullt í vinnu þannig að það er ekki hægt að bögga hana lengur yfir daginn.... það er þó stutt í nýja fjölskyldumeðliminn þannig að það verður bráðum nóg að gera. Helgi er á fullu núna að pæla í bílakaupum.... ég kann ekkert á þessi mál þannig að hann grúskar einn í þessu - hann sýnir mér samt myndir bara svona til að fá samþykki mitt hehehe. Skilyrðin eru þó þau að við kaupum sjálfskiptan station bíl með loftkælingu. Erum með einn Opel Omega í sigtinu núna og fer hann líklega að skoða hann á morgunn.... spennandi! Það er strax búið að bóka gistipláss hjá okkur í febrúar.... endalaus gestagangur hjá okkur :) en það eru Raggi og Munda sem ætla að kíkja til okkar. Hlökkum að sjálfsögðu til að fá þau í heimsókn....
Ég fór og heimsótti Huddinge sjukhus í gær. Fékk að fylgja eftir íslenskum sjúkraþjálfara sem vinnur þar. Hún gaf mér upp góðar upplýsingar um hvernig ég þarf að bera mig að til að fá löggildingu hér í Svíþjóð og svo erum við Edda búnar að vesenast smá í þeim málum nú í dag. Frábær tilfinning að þessir hlutir séu komnir í gang. Af því að ég er nú að tala um sjúkraþjálfun þá vil ég óska sjúkraþjálfaranum og vinkonu minni - henni Rósu - innilega til hamingju með daginn .... ég veit að hún er tryggur lesandi þessarar síðu. Nú er akkúrat vika þangað til mamma, pabbi, Guðlaug og Svenni koma í heimsókn.... mikil tilhlökkun í gangi hér á þessu heimili Að öðru leyti er ég búin að vera alveg farlama af harðsperrum undanfarna tvo daga. Hef ekki getað gengið upp og niður tröppur án þess að að finna gríðarlega til... meira að segja átt erfitt með að setjast á klósettið!!!!!!