Jólaskapið komið
Hér er búið að snjóa í alla nótt og snjóar enn..... þar að auki alveg blankalogn þannig að það getur eiginlega ekki orðið jólalegra. Fannar er nú þegar búinn að henda tveimur snjóboltum í mig og var planið hans í dag að búa til fleiri. Það verður örugglega rosa stuð hjá honum í leikskólanum í dag :) Þetta barn stækkar svo mikið að hann er löngu vaxinn upp úr snjóbuxunum sínum síðan í fyrra vetur.... þær ná honum næstum upp á miðja kálfa! Það er sem sagt kominn tími til að við foreldrarnir kaupum handa honum nýjar kuldabuxur svo hann sé nú almennilega klæddur drengurinn.... ekki seinna vænna nú þegar snjórinn er kominn.
Helgi var á næturvakt í nótt. Fannar tilkynnti við kvöldmatarborðið í gær að það væri bara gott að pabbi sinn væri að fara að vinna. Hann veit nefnilega að hann fær að kúra hjá mömmu sinni þegar pabbi hans er á vakt (þó hann hafi ekki nefnt það í framhaldinu :o)
Ummæli
Takk fyrir myndirnar og gleðileg jól :)
Sakna ykkar allra voða mikið.
Allir hressir hérna, nema Hreinn Gunnar - hann er með kvef, þessi stóri sterki strákur :) Hann er búinn að vinna svo mikið undanfarið að mótstaðan hefur minnkað !!!
Hjartans kveðjur.
Gróa.
Gleðileg jól og farsælt komandi ár,
ástarkveðjur frá Kanada, Helgi