Fara í aðalinnihald

30 ára!!

Jamm og já.... í dag á ég afmæli. Hvorki meira né minna en 30 ára (úff!). Mér finnst þetta með skrítnari afmælum.... orðin eitthvað svo gömul! Svo getur maður ekki einu sinni haldið ærlegt partý í tilefni dagsins, þar sem maður er á kafi í börnum og uppeldi hehe ;) Búin að fá fullt af kveðjum í dag... takk kærlega allir saman.

Í dag get ég varla gengið. Það er þó ekki sökum aldurs heldur vegna þess að ég fór í leikfimi í gær (ekki nema að þessi hái aldur geri það að verkum að líkaminn bregst við eins og hann gerir?). Tröppur er minn versti óvinur og ekki er betra að setjast niður og standa upp. Bæti þetta upp með Pizza Hut í kvöld og kóki (er alveg hætt að drekka gos nema við sérstök tilefni ;) Ætli maður reyni svo ekki við nýja æfingu á morgun ef ég kemst fram úr rúminu í fyrramálið (þá orðin 30 ára + 1 dagur!)

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Til hamingju með afmælið Sara mín. Þú hefur bara tekið svona vel á í ræktinni, það hefði gamalmenni ekki getað ;o)
Kveðja Rósa
Nafnlaus sagði…
Til hamingu með afmælið í gær ;)

hehe, það er nú ekki gott ef að tröppur er þinn versti óvinur, nóg er af þeim heima hjá ykkur..... :)

kveðja Magga
Gróa sagði…
Elsku hjartans Sara mín.
Innilega til hamingju með afmælið í gær (ég náttúrlega gleymdi deginum !!!) (svona er ég nú orðin gömul). Og ég kannast við þetta með harðsp.....því um daginn fór ég í leikfimi í fyrsta sinn í 100 ár og fyrstu dagarnir á eftir voru hræðilegir.......en svo lagast þetta :) :)
Hjartans kveðjur,
Gróa.
Nafnlaus sagði…
Til hamingju með afmælið þann 23.!

Mamma hefur alltaf sagt að henni hafi þótt 30 ára afmælið verst, en að allir afmælisdagar hafi verið góðir eftir það. :-)

Kær kveðja,
Hjördís

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Jólaskapið komið Hér er búið að snjóa í alla nótt og snjóar enn..... þar að auki alveg blankalogn þannig að það getur eiginlega ekki orðið jólalegra. Fannar er nú þegar búinn að henda tveimur snjóboltum í mig og var planið hans í dag að búa til fleiri. Það verður örugglega rosa stuð hjá honum í leikskólanum í dag :) Þetta barn stækkar svo mikið að hann er löngu vaxinn upp úr snjóbuxunum sínum síðan í fyrra vetur.... þær ná honum næstum upp á miðja kálfa! Það er sem sagt kominn tími til að við foreldrarnir kaupum handa honum nýjar kuldabuxur svo hann sé nú almennilega klæddur drengurinn.... ekki seinna vænna nú þegar snjórinn er kominn. Helgi var á næturvakt í nótt. Fannar tilkynnti við kvöldmatarborðið í gær að það væri bara gott að pabbi sinn væri að fara að vinna. Hann veit nefnilega að hann fær að kúra hjá mömmu sinni þegar pabbi hans er á vakt (þó hann hafi ekki nefnt það í framhaldinu :o)
Aftur mætt á bloggið! Þá er Íslandsförinni lokið og ég hef nógan tíma til að sitja yfir þessu bloggi aftur. Það var nú mjög gott að koma heim aftur en þó líka doldið einmanalegt þegar ég fór með Fannar á leikskólann í gær..... aftur orðin ein! Edda vinkona er komin á fullt í vinnu þannig að það er ekki hægt að bögga hana lengur yfir daginn.... það er þó stutt í nýja fjölskyldumeðliminn þannig að það verður bráðum nóg að gera. Helgi er á fullu núna að pæla í bílakaupum.... ég kann ekkert á þessi mál þannig að hann grúskar einn í þessu - hann sýnir mér samt myndir bara svona til að fá samþykki mitt hehehe. Skilyrðin eru þó þau að við kaupum sjálfskiptan station bíl með loftkælingu. Erum með einn Opel Omega í sigtinu núna og fer hann líklega að skoða hann á morgunn.... spennandi! Það er strax búið að bóka gistipláss hjá okkur í febrúar.... endalaus gestagangur hjá okkur :) en það eru Raggi og Munda sem ætla að kíkja til okkar. Hlökkum að sjálfsögðu til að fá þau í heimsókn....
Ég fór og heimsótti Huddinge sjukhus í gær. Fékk að fylgja eftir íslenskum sjúkraþjálfara sem vinnur þar. Hún gaf mér upp góðar upplýsingar um hvernig ég þarf að bera mig að til að fá löggildingu hér í Svíþjóð og svo erum við Edda búnar að vesenast smá í þeim málum nú í dag. Frábær tilfinning að þessir hlutir séu komnir í gang. Af því að ég er nú að tala um sjúkraþjálfun þá vil ég óska sjúkraþjálfaranum og vinkonu minni - henni Rósu - innilega til hamingju með daginn .... ég veit að hún er tryggur lesandi þessarar síðu. Nú er akkúrat vika þangað til mamma, pabbi, Guðlaug og Svenni koma í heimsókn.... mikil tilhlökkun í gangi hér á þessu heimili Að öðru leyti er ég búin að vera alveg farlama af harðsperrum undanfarna tvo daga. Hef ekki getað gengið upp og niður tröppur án þess að að finna gríðarlega til... meira að segja átt erfitt með að setjast á klósettið!!!!!!