Fara í aðalinnihald

myndasyrpa

Well, nú finnst mér kominn tími til að setja inn nokkrar myndir af börnunum :) Það er ekkert nýtt að frétta af okkur fjölskyldunni svo þið fáið bara myndir. Njótið vel.


Sandra Ósk í fangi móður sinnar á gamlárskvöld (í nýja kjólnum frá langömmu og langafa).


Viktor Snær að borða ís á gamlárskvöld


Systkinin öll saman


Viktor Snær að kubba. Hann er mjög duglegur að dunda sér EF maður nennir að sitja hjá honum ;)


Sandra Ósk orðin ansi dugleg að lyfta höfðinu :)


Viktor Snær vill alltaf fá að vera með Söndru


Hér er t.d. gott dæmi um það. Hann vill líka vera litla barnið (sem hann auðvitað er líka.... bara ekki svooona lítill :)

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Gaman að sjá myndir. Þau eru öll æðisleg, svakalega flottur HÓPUR :)
Snjókveðja frá Kef
g
Gróa sagði…
Hæ Sara mín - og þið öll.
Mikið er gaman að sjá fínu myndirnar. Þau dafna aldeilis börnin ykkar fallegu.
Héðan er allt gott - allir hressir og kátir í snjónum :)

Meira seinna :)

Kær kveðja.
Gróa og co.
Nafnlaus sagði…
Til hamingju með daginn Sara mín. Njóttu hans nú í botn.
kv úr kef Munda og co
Guðlaug sagði…
Elsku systir!
Til hamingju með stórafmælið!!! ;)
Love u,
Guðlaug

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Arnar er í heimsókn hjá okkur núna
Aftur mætt á bloggið! Þá er Íslandsförinni lokið og ég hef nógan tíma til að sitja yfir þessu bloggi aftur. Það var nú mjög gott að koma heim aftur en þó líka doldið einmanalegt þegar ég fór með Fannar á leikskólann í gær..... aftur orðin ein! Edda vinkona er komin á fullt í vinnu þannig að það er ekki hægt að bögga hana lengur yfir daginn.... það er þó stutt í nýja fjölskyldumeðliminn þannig að það verður bráðum nóg að gera. Helgi er á fullu núna að pæla í bílakaupum.... ég kann ekkert á þessi mál þannig að hann grúskar einn í þessu - hann sýnir mér samt myndir bara svona til að fá samþykki mitt hehehe. Skilyrðin eru þó þau að við kaupum sjálfskiptan station bíl með loftkælingu. Erum með einn Opel Omega í sigtinu núna og fer hann líklega að skoða hann á morgunn.... spennandi! Það er strax búið að bóka gistipláss hjá okkur í febrúar.... endalaus gestagangur hjá okkur :) en það eru Raggi og Munda sem ætla að kíkja til okkar. Hlökkum að sjálfsögðu til að fá þau í heimsókn....
Eins og þið flest líklega vitið er litla prinsessan fædd.... lítil snúlla sem hefur fengið nafnið Sandra Ósk. Hún ákvað að drífa sig í heiminn aðfaranótt 3. október. Hún var að flýta sér svo mikið að ljósmóðirin sem tók á móti henni náði ekki einu sinni að skrá mig inn á fæðingardeildina áður en hún fæddist. Þessar ljósmæður verða alltaf jafn hissa hversu fljót þessi börn mín eru að koma í heiminn..... Fannar er rosalega stoltur af systur sinni. Nefnir nokkrum sinnum á dag hversu lítil og sæt honum finnst hún. Viktor aftur á móti hefur verið í smá baráttu um athygli en virðist þó vera farinn að sætta sig við hlutina núna. Hann er samt voða góður við hana og vill endalaust knúsa og kyssa hana. Allt gengur vel að öðru leyti. Sandra drekkur vel og sefur mikið.... alveg eins og það á að vera þegar maður er svona pínulítill. Hún er rosalega vær og góð.... algjör snúlla :) Fyrsta baðið - 6 daga gömul