Nú er heimilislífið farið að falla í hefðbundna rútínu. Helgi kominn á fullt í vinnunni, Fannar byrjaði í skólanum á mánudaginn og Viktor fer á leikskólann. Viktor er hættur með bleiu... gekk ótrúlega hratt og vel. Hann hefur verið þurr á morgnana líka en við látum hann samt enn sofa með bleiu til öryggis. Við fórum í skottúr til Finnlands síðustu helgi. Tókum ferju á föstudagskvöldið, sigldum alla nóttina, eyddum laugardeginum í múmíndalnum og sigldum svo til baka um kvöldið. Vorum komin aftur til Stokkhólms snemma á sunnudagsmorgun. Mjög skemmtileg ferð en líka frekar erfið... við sváfum ekki mikið þessa helgi. Þurftum að vakna klukkan 5 á laugardagsmorgni og 5.30 á sunnudeginum. Notuðum því sunnudaginn til að skiptast á að sofa :) Við fórum í þessa ferð með leikskólanum hans Viktors. Það var ein mamman sem tók það að sér að skipuleggja allt saman..... gott framtak :) Við Sandra byrjum aftur í ungbarnasundi á morgun. Hlakka mikið til. Litla snúllan er svo dugleg i vatninu og nýtur ...