Fara í aðalinnihald
Gifsið verður tekið á mánudaginn. Við Helgi erum orðin mjööög spennt.... líklega spenntari en Viktor ;) Bæklunarlæknir á Karolinska skoðaði röntgenmyndirnar og ákvað að stytta tímann um viku. Viktor hefur aftur á móti þurft að hafa gifsið upp í nára allan tímann. Alla þessa viku hefur hann þó mátt stíga í fótinn og hann er nú farinn að labba um allt. Það varð þvílíkur munur á drengnum eftir að hann mátti setja þyngd á fótinn. Í síðustu viku var hann mjög leiður.... sérstaklega á leikskólanum. Núna labbar hann um allt með staurfótinn og er kátur og hress, finnst skemmtilegt á leikskólanum.



Sandra er búin að fatta að það er betra að labba en skríða. Hún er alltaf jafn róleg og sæt. Hún er svo mikil stelpa.... lítur ekki við öllum bílunum sem eru til á heimilinu og rogast í staðinn um allt með dúkkur. Hún byrjar að dansa um leið og hún heyrir tónlist :) Þetta er svo nýtt fyrir okkur Helga. Strákarnir eru alveg á hinum endanum. Gaman að þessu :)


Þessi mynd er tekin af snúllunni í Finnlandi í ágúst


Jæja nú bíður nokkur verk.  Viktor er að biðja um hádegismat og svo þarf ég að taka mig til fyrir ungbarnasund :)
Þar til næst... bless bless.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Hæhæ
Hvernig gekk að losna við gifsið? Er gaurinn ekki frekar sáttur?
Allt ágætt að frétta hér.
kv Munda

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Hitt og þetta

Langaði að henda inn nokkrum myndum.... Krakkarnir keyptu sér ný rúm. Helgi að setja saman rúmið hennar Söndru Tillbúið... eða næstum. Vantar bara skúffurnar undir rúmið. Sandra mjög sátt Næsta rúm sett saman Viktor líka sáttur. Hér vantar líka skúffurnar undir rúmið Sandra á sínum fyrsta leik vorsins. Missteig sig mjög ílla. Var mánuð að jafna sig en er núna komin á fullt i fótboltanum aftur Ég skaust i helgarferð til Köben á kóramót íslenskra kóra i Evrópu. Kórarnir æfðu saman och síðan voru haldnir kórtónleikar i kirkju við Strikið. Mótið endaði svo med svaka partýi um kvöldið Hér er hluti kórsins að fá sér bjór í einni pásunni Pabbi og Guðlaug sungu med Bergen kórnum. Hrikalega gaman að hitta þau .... með Völu, vínkonu í kórnum

Viktor töffari

Viktor er búinn að byðja mig um að lita á sér hárið í nokkurn tíma. Ég lét loksins eftir! Hann var alveg með á hreinu hvernig hann vildi hafa hárið. Ég fylgdi því bara hans óskum og svei mér þá ef það tókst ekki bara ágætlega.... dæmið sjálf. Litli maðurinn er alla vega mjög ánægður :) Litun í gangi   Búið að klippa og lita Mjög sáttur Læt fylgja med eina mynd av heimasætunni tekin milli jóla og nýárs

Högskolepedagogik för handledare

Loksins er kúrsinn búinn. Búið að vera mikið að gera þessa haustönn en núna eftir á að hyggja var það þess virði. Nú er ég ótrúlega ánægð að ég skellti mér í þetta :) Ein af lestrar-stundunum í haust Dimma hélt mér selskap :)