Fara í aðalinnihald
Það eru veikindi á heimilinu. Viktor er búinn að vera lasinn síðan á sunnudag. Hann er búinn að vera mjög hás, með geltandi hósta og hita. Í nótt fékk Sandra svo líka hita.... tuskuleg litla skinnið. Það eru tvö íslensk barnaafmæli um helgina... vona að allir verða orðnir frískir þá. Barnaafmælin eru nefnilega stór hluti af félagslífinu okkar hér í Stokkhólmi!! Sorglegt?.... já ég veit.

Mamma og pabbi koma í lok næstu viku í smá heimsókn. Mikil spenna ríkir því hér. Það er ansi langt síðan við vorum síðast með næturgesti...... það voru Nonni og Nadja sem komu í byrjun ágúst. Mér finnst það alla vega langur tími! Ég vona nú að Guðlaug og Svenni láti líka sjá sig hér fyrir jól..... hint hint!! Svo koma tengdó líka einhvern tímann á þessu ári..... veltur á því hvenær Nadja ætlar að koma tvíburunum í heiminn.... vonandi seinna en fyrr!! Já og svo er Addi að spá í að vera með okkur um áramótin.... vona að hann láti verða af því :)

Best að hætta þessu blaðri um ekki neitt....

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Bara kasta kveðju og kvitta fyrir innlitið
Friðrik í Horsens
Nafnlaus sagði…
Jæja nú er nóvember nánast búin og ekkert blogg. Ekki eru enn veikindi???
Langar svooo í blogg frá þér.
kv Munda

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Arnar er í heimsókn hjá okkur núna
Aftur mætt á bloggið! Þá er Íslandsförinni lokið og ég hef nógan tíma til að sitja yfir þessu bloggi aftur. Það var nú mjög gott að koma heim aftur en þó líka doldið einmanalegt þegar ég fór með Fannar á leikskólann í gær..... aftur orðin ein! Edda vinkona er komin á fullt í vinnu þannig að það er ekki hægt að bögga hana lengur yfir daginn.... það er þó stutt í nýja fjölskyldumeðliminn þannig að það verður bráðum nóg að gera. Helgi er á fullu núna að pæla í bílakaupum.... ég kann ekkert á þessi mál þannig að hann grúskar einn í þessu - hann sýnir mér samt myndir bara svona til að fá samþykki mitt hehehe. Skilyrðin eru þó þau að við kaupum sjálfskiptan station bíl með loftkælingu. Erum með einn Opel Omega í sigtinu núna og fer hann líklega að skoða hann á morgunn.... spennandi! Það er strax búið að bóka gistipláss hjá okkur í febrúar.... endalaus gestagangur hjá okkur :) en það eru Raggi og Munda sem ætla að kíkja til okkar. Hlökkum að sjálfsögðu til að fá þau í heimsókn....
Eins og þið flest líklega vitið er litla prinsessan fædd.... lítil snúlla sem hefur fengið nafnið Sandra Ósk. Hún ákvað að drífa sig í heiminn aðfaranótt 3. október. Hún var að flýta sér svo mikið að ljósmóðirin sem tók á móti henni náði ekki einu sinni að skrá mig inn á fæðingardeildina áður en hún fæddist. Þessar ljósmæður verða alltaf jafn hissa hversu fljót þessi börn mín eru að koma í heiminn..... Fannar er rosalega stoltur af systur sinni. Nefnir nokkrum sinnum á dag hversu lítil og sæt honum finnst hún. Viktor aftur á móti hefur verið í smá baráttu um athygli en virðist þó vera farinn að sætta sig við hlutina núna. Hann er samt voða góður við hana og vill endalaust knúsa og kyssa hana. Allt gengur vel að öðru leyti. Sandra drekkur vel og sefur mikið.... alveg eins og það á að vera þegar maður er svona pínulítill. Hún er rosalega vær og góð.... algjör snúlla :) Fyrsta baðið - 6 daga gömul