Fara í aðalinnihald
Ég var ekki búin að nefna að Sandra varð eins árs þann 3. okt. Kannski týpiskt með þriðja barn :o/ Við erum ekki einu sinni búin að halda upp á afmælið. Það stendur nú til en það hefur bara ekki gefist tækifæri til þess enn.

Sandra fékk þó pakka á afmælisdaginn.... og reyndar Viktor og Fannar líka... í tilefni dagsins :) Viktor er hér að aðstoða systur sína. Honum fannst hún heldur róleg yfir pökkunum.

Það er alltaf eitthvað heillandi við þessa uppþvottavél :) Fannar er þó hættur að sýna henni áhuga en Viktor vill ólmur aðstoða við að tæma hana. Sandra er bara fyrir hehe :)

Kjarri og Sveina voru í Stokkhólmi um síðustu helgi. Helgi fór með strákana niður í bæ að hitta þau þegar við Sandra vorum í sundi. Þeir fóru með strætó og lest. Ég hitti þau svo í bænum eftir sundið.

Það var hrikalega gaman að hitta þau og enn skemmtilegra hvað þau gátu eytt miklum tíma með okkur. Við borðuðum saman tvö kvöld og nutum félagsskaps þeirra langt fram eftir nóttu bæði kvöldin.

Halloween er eitthvað sem Svíarnir halda upp á. Fannar fékk nýjan búning í tilefni dagsins en það var haldið upp á halloween á föstudaginn í skólanum hans. Ekki má þá gleyma Viktori sem er mikill spiderman aðdáandi (ekki það að hann hafi nokkurn tímann séð spiderman myndirnar). Það verður halloween partý á leikskólanum hans á föstudaginn næsta. Ægilega gaman. Viktor vill ekki fara úr sínum búningi.... fer í hann um leið og hann kemur heim úr leikskólanum og vill helst sofa í honum líka :)

Ummæli

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Jólaskapið komið Hér er búið að snjóa í alla nótt og snjóar enn..... þar að auki alveg blankalogn þannig að það getur eiginlega ekki orðið jólalegra. Fannar er nú þegar búinn að henda tveimur snjóboltum í mig og var planið hans í dag að búa til fleiri. Það verður örugglega rosa stuð hjá honum í leikskólanum í dag :) Þetta barn stækkar svo mikið að hann er löngu vaxinn upp úr snjóbuxunum sínum síðan í fyrra vetur.... þær ná honum næstum upp á miðja kálfa! Það er sem sagt kominn tími til að við foreldrarnir kaupum handa honum nýjar kuldabuxur svo hann sé nú almennilega klæddur drengurinn.... ekki seinna vænna nú þegar snjórinn er kominn. Helgi var á næturvakt í nótt. Fannar tilkynnti við kvöldmatarborðið í gær að það væri bara gott að pabbi sinn væri að fara að vinna. Hann veit nefnilega að hann fær að kúra hjá mömmu sinni þegar pabbi hans er á vakt (þó hann hafi ekki nefnt það í framhaldinu :o)
Aftur mætt á bloggið! Þá er Íslandsförinni lokið og ég hef nógan tíma til að sitja yfir þessu bloggi aftur. Það var nú mjög gott að koma heim aftur en þó líka doldið einmanalegt þegar ég fór með Fannar á leikskólann í gær..... aftur orðin ein! Edda vinkona er komin á fullt í vinnu þannig að það er ekki hægt að bögga hana lengur yfir daginn.... það er þó stutt í nýja fjölskyldumeðliminn þannig að það verður bráðum nóg að gera. Helgi er á fullu núna að pæla í bílakaupum.... ég kann ekkert á þessi mál þannig að hann grúskar einn í þessu - hann sýnir mér samt myndir bara svona til að fá samþykki mitt hehehe. Skilyrðin eru þó þau að við kaupum sjálfskiptan station bíl með loftkælingu. Erum með einn Opel Omega í sigtinu núna og fer hann líklega að skoða hann á morgunn.... spennandi! Það er strax búið að bóka gistipláss hjá okkur í febrúar.... endalaus gestagangur hjá okkur :) en það eru Raggi og Munda sem ætla að kíkja til okkar. Hlökkum að sjálfsögðu til að fá þau í heimsókn....
Ég fór og heimsótti Huddinge sjukhus í gær. Fékk að fylgja eftir íslenskum sjúkraþjálfara sem vinnur þar. Hún gaf mér upp góðar upplýsingar um hvernig ég þarf að bera mig að til að fá löggildingu hér í Svíþjóð og svo erum við Edda búnar að vesenast smá í þeim málum nú í dag. Frábær tilfinning að þessir hlutir séu komnir í gang. Af því að ég er nú að tala um sjúkraþjálfun þá vil ég óska sjúkraþjálfaranum og vinkonu minni - henni Rósu - innilega til hamingju með daginn .... ég veit að hún er tryggur lesandi þessarar síðu. Nú er akkúrat vika þangað til mamma, pabbi, Guðlaug og Svenni koma í heimsókn.... mikil tilhlökkun í gangi hér á þessu heimili Að öðru leyti er ég búin að vera alveg farlama af harðsperrum undanfarna tvo daga. Hef ekki getað gengið upp og niður tröppur án þess að að finna gríðarlega til... meira að segja átt erfitt með að setjast á klósettið!!!!!!