Fara í aðalinnihald

Ísland

Ég er á Íslandi! Held svo sem að flestir viti það :) Helgi gaf mér húsmæðraorlof til Íslands í afmælisgjöf í janúar og nú er ég sem sagt hér. Ég nýt þess alveg í botn að vera bara ein að dúlla mér.... þarf ekki að hugsa um hvenær þarf að skipta á næstu bleiu eða pakka aukafötum ofaní tösku í hvert skipti sem ég ætla út hehe.
Ég er búin að gera alveg heilan helling. Búin að hitta sjúkraþjálfarana og búin að fara í jarðaför hjá elskulega afa mínum og þar með hitta alla móðurættina á einu bretti. Fara í mat til tengdó og mat til ömmu og afa, hitta Mundu og Ragga, sjá litla sjármörinn hann Atla Dag í fyrsta skipti (glænýr sonur Önnu Freyju og Óskars). Dagurinn í dag er fyrsti rólegi dagurinn. Hitti Guðlaugu sys í hádeginu og kíkti svo bara aðeins niður í bæ. Í kvöld ætla mamma og pabbi að bjóða okkur út að borða og á morgun eru þau búin að bjóða mér í leikhús... á jesus christ superstar..... verður örugglega gaman. Svo er matarboð á föstudagskvöldið með menntaskólavinkonunum... hlakka mikið til að hitta þær.

Nú verð ég að fara að hætta því það er að koma að næsta stefnumóti.... ætla að kíkja í kaffi til Guðrúnar vinkonu áður er ég fer út að borða í kvöld.
Þar til næst... hvenær sem það nú verður ;) Bless bless.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Takk fyrir komuna í gær og mannst getur alltaf gert pínu pínu lítið gat á botninn ;-)

Góða rest af orlofi og góða ferð heim.
kv Munda

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Arnar er í heimsókn hjá okkur núna
Aftur mætt á bloggið! Þá er Íslandsförinni lokið og ég hef nógan tíma til að sitja yfir þessu bloggi aftur. Það var nú mjög gott að koma heim aftur en þó líka doldið einmanalegt þegar ég fór með Fannar á leikskólann í gær..... aftur orðin ein! Edda vinkona er komin á fullt í vinnu þannig að það er ekki hægt að bögga hana lengur yfir daginn.... það er þó stutt í nýja fjölskyldumeðliminn þannig að það verður bráðum nóg að gera. Helgi er á fullu núna að pæla í bílakaupum.... ég kann ekkert á þessi mál þannig að hann grúskar einn í þessu - hann sýnir mér samt myndir bara svona til að fá samþykki mitt hehehe. Skilyrðin eru þó þau að við kaupum sjálfskiptan station bíl með loftkælingu. Erum með einn Opel Omega í sigtinu núna og fer hann líklega að skoða hann á morgunn.... spennandi! Það er strax búið að bóka gistipláss hjá okkur í febrúar.... endalaus gestagangur hjá okkur :) en það eru Raggi og Munda sem ætla að kíkja til okkar. Hlökkum að sjálfsögðu til að fá þau í heimsókn....
Eins og þið flest líklega vitið er litla prinsessan fædd.... lítil snúlla sem hefur fengið nafnið Sandra Ósk. Hún ákvað að drífa sig í heiminn aðfaranótt 3. október. Hún var að flýta sér svo mikið að ljósmóðirin sem tók á móti henni náði ekki einu sinni að skrá mig inn á fæðingardeildina áður en hún fæddist. Þessar ljósmæður verða alltaf jafn hissa hversu fljót þessi börn mín eru að koma í heiminn..... Fannar er rosalega stoltur af systur sinni. Nefnir nokkrum sinnum á dag hversu lítil og sæt honum finnst hún. Viktor aftur á móti hefur verið í smá baráttu um athygli en virðist þó vera farinn að sætta sig við hlutina núna. Hann er samt voða góður við hana og vill endalaust knúsa og kyssa hana. Allt gengur vel að öðru leyti. Sandra drekkur vel og sefur mikið.... alveg eins og það á að vera þegar maður er svona pínulítill. Hún er rosalega vær og góð.... algjör snúlla :) Fyrsta baðið - 6 daga gömul