Fórum í dýragarð um síðustu helgi. Þ.e.a.s. ég, Sandra og Viktor. Helgi var upptekinn og Fannar vildi ekki koma með.... orðinn svo mikill unglingur!
Leikskólinn bauð öllum fjölskyldum og starfsfólki í garðinn í tvo daga með gistingu í eina nótt á hóteli staðarins. Við vorum í samfloti með samstarfskonu minni, Ivana, og dætrum hennar: Jovana (5 ára) og Teadora (8 ára).

Við áttum alveg æðislega helgi á staðnum í góðum félagsskap. Fyrir utan öll dýrin sem við sáum fórum við á diskó... dönsuðum og drukkum drykki (áfenga og óáfenga :) Fórum í sund á hótelinu, fórum á höfrungasýningu og fengum góðan kvöldmat og morgunmat. Krakkarnir fóru þar að auki óteljandi ferðir í rússíbana svæðisins (var líklega hápunkturinn hjá þeim :), þau voru óstöðvandi!!
Á leið að sjá tígrisdýrin
Kaffipása. Tea, Jovana, Sandra og Viktor
Viktor og Sandra skoða dýrin :)
Hér erum við að sjá fíla-æfingu.
Þessi fíll mun eignast kálf seint í sumar/haust. Söndru fannst það mjög spennandi :)
Fyrir.....
.... og eftir :)
Diskó, tími fyrir drykk :)
Vinkonurnar Embla og Sandra taka sér drykkjarpásu á diskóinu
Sáttur með nestið sitt
Íspása áður en haldið er heim á leið
Ummæli
gaman að sjá myndir :)
knús,
mútta
Kv Magga