Fara í aðalinnihald

Atvinna

Nú er ég búin að vinna í þrjá mánuði í grunnskólanum, Tomtbergaskolan. Þetta er ekki alveg skemmtilegasta vinnan sem ég hef unnið…. þó betra en að sitja heima og gera ekki neitt. Ekki bætir úr að vinnumórallinn er ekki alveg hinn besti og sjéffinn hefur ekki bein í nefinu til að takast á við það.
Ég er ráðin í skólanum út þessa önn og er ég búin að fá að vita að strákurinn sem ég er að leysa af kemur tilbaka eftir áramót. Ég mun því ekki fá framlengt… og hef svo sem ekki mikinn áhuga á því :-/

Hvað um það. Hver veit nema þetta allt taki enda fyrr en mig grunaði.

Á mánudaginn er ég að fara í atvinnuviðtal á Karolinska sjúkrahúsinu í Solna. Yfirmaður Helga (og einhverjir fleiri yfirmenn hingað og þangað) er búinn að toga í einhverja spotta svo ég eigi möguleika að fá vinnu á Karolinska þrátt fyrir 12 mánaða regluna. Þannig að á mánudaginn er ég að fara að hitta einn yfirmann sjúkraþjálfunardeildarinnar á KS (sem ég, by the way, hef unnið með áður en þá var hún ekki yfirmaður). Kemur betur í ljós hvernig þetta fer en samkvæmt samtalinu sem ég átti við hana í kvöld er laus staða á smitsjúkdómadeild.

Spennandi og er ég með smá kvíðahnút í maganum :)

Ummæli

Guðlaug sagði…
En spennandi!! Ekki kvíðahnút Sara mín, bara spenningshnút ;) Hlakka til að heyra hvernig fer...
Nafnlaus sagði…
og hvernig fór þetta?
kv Munda
Sara sagði…
Viðtalið er í fyrramálið :)

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Arnar er í heimsókn hjá okkur núna
Aftur mætt á bloggið! Þá er Íslandsförinni lokið og ég hef nógan tíma til að sitja yfir þessu bloggi aftur. Það var nú mjög gott að koma heim aftur en þó líka doldið einmanalegt þegar ég fór með Fannar á leikskólann í gær..... aftur orðin ein! Edda vinkona er komin á fullt í vinnu þannig að það er ekki hægt að bögga hana lengur yfir daginn.... það er þó stutt í nýja fjölskyldumeðliminn þannig að það verður bráðum nóg að gera. Helgi er á fullu núna að pæla í bílakaupum.... ég kann ekkert á þessi mál þannig að hann grúskar einn í þessu - hann sýnir mér samt myndir bara svona til að fá samþykki mitt hehehe. Skilyrðin eru þó þau að við kaupum sjálfskiptan station bíl með loftkælingu. Erum með einn Opel Omega í sigtinu núna og fer hann líklega að skoða hann á morgunn.... spennandi! Það er strax búið að bóka gistipláss hjá okkur í febrúar.... endalaus gestagangur hjá okkur :) en það eru Raggi og Munda sem ætla að kíkja til okkar. Hlökkum að sjálfsögðu til að fá þau í heimsókn....
Eins og þið flest líklega vitið er litla prinsessan fædd.... lítil snúlla sem hefur fengið nafnið Sandra Ósk. Hún ákvað að drífa sig í heiminn aðfaranótt 3. október. Hún var að flýta sér svo mikið að ljósmóðirin sem tók á móti henni náði ekki einu sinni að skrá mig inn á fæðingardeildina áður en hún fæddist. Þessar ljósmæður verða alltaf jafn hissa hversu fljót þessi börn mín eru að koma í heiminn..... Fannar er rosalega stoltur af systur sinni. Nefnir nokkrum sinnum á dag hversu lítil og sæt honum finnst hún. Viktor aftur á móti hefur verið í smá baráttu um athygli en virðist þó vera farinn að sætta sig við hlutina núna. Hann er samt voða góður við hana og vill endalaust knúsa og kyssa hana. Allt gengur vel að öðru leyti. Sandra drekkur vel og sefur mikið.... alveg eins og það á að vera þegar maður er svona pínulítill. Hún er rosalega vær og góð.... algjör snúlla :) Fyrsta baðið - 6 daga gömul