Fara í aðalinnihald
Annar í aðventu
Fannar er búinn að vera veikur síðan á fimmtudag. Fyrsti hitalausi dagurinn var í gær og nú í þessum skrifuðu orðum er verið að viðra barnið. Helgi og Fannar eru sem sagt í hjólatúr í leit að stórum pollum Allur snjórinn er að mestu farinn og spáir bara hlýju næstu daga. Hann verður nú líklega allur farinn þegar tengdó koma á fimmtudag.

Guðný (frænka hans Helga) og Grétar kíktu í smá heimsókn til okkar í gær. Fengu þau kaffi og heimabakaðar smákökur hjá okkur ferlega notalegt að fá þau í heimsókn. Takk fyrir innlitið.

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Hæ og hó. Er farin að taka þátt í lífinu aftur :) og komin í hóp kommentera! Gaman að fá gesti, greinilega búið að vera gestkvæmt hjá ykkur í haust. Heldur vonandi áfram. Vona að þú sért bumbu-hress Sara.
Kv.
Guðrún
Sara sagði…
Takk fyrir Guðrún - jú ég er sko bumbu-hress :o)

Til hamingju með að vera búin að skila verkefninu... góð tilfinning finnst þér það ekki :oD ?

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Hitt og þetta

Langaði að henda inn nokkrum myndum.... Krakkarnir keyptu sér ný rúm. Helgi að setja saman rúmið hennar Söndru Tillbúið... eða næstum. Vantar bara skúffurnar undir rúmið. Sandra mjög sátt Næsta rúm sett saman Viktor líka sáttur. Hér vantar líka skúffurnar undir rúmið Sandra á sínum fyrsta leik vorsins. Missteig sig mjög ílla. Var mánuð að jafna sig en er núna komin á fullt i fótboltanum aftur Ég skaust i helgarferð til Köben á kóramót íslenskra kóra i Evrópu. Kórarnir æfðu saman och síðan voru haldnir kórtónleikar i kirkju við Strikið. Mótið endaði svo med svaka partýi um kvöldið Hér er hluti kórsins að fá sér bjór í einni pásunni Pabbi og Guðlaug sungu med Bergen kórnum. Hrikalega gaman að hitta þau .... með Völu, vínkonu í kórnum

Viktor töffari

Viktor er búinn að byðja mig um að lita á sér hárið í nokkurn tíma. Ég lét loksins eftir! Hann var alveg með á hreinu hvernig hann vildi hafa hárið. Ég fylgdi því bara hans óskum og svei mér þá ef það tókst ekki bara ágætlega.... dæmið sjálf. Litli maðurinn er alla vega mjög ánægður :) Litun í gangi   Búið að klippa og lita Mjög sáttur Læt fylgja med eina mynd av heimasætunni tekin milli jóla og nýárs

Högskolepedagogik för handledare

Loksins er kúrsinn búinn. Búið að vera mikið að gera þessa haustönn en núna eftir á að hyggja var það þess virði. Nú er ég ótrúlega ánægð að ég skellti mér í þetta :) Ein af lestrar-stundunum í haust Dimma hélt mér selskap :)