Fara í aðalinnihald
Við Helgi erum búin að jólastússast undanfarna daga. Tengdó koma á morgunn og þurfti því að vera búið að versla allar jólagjafir sem fara til Íslands áður en þau koma..... sem tókst. Meira að segja búin að pakka öllu voða vel inn og allt reddí (aldrei verið jafn tímanlega með jólagjafir fyrr) Við eigum reyndar eftir að kaupa eina jólagjöf og það er handa Fannari. Vi funderar lite på saken just nu. Vitum ekki alveg hvað við gefum honum þetta árið.

Annars er mikil tilhlökkun yfir að fá hjónakornin hingað á morgunn. Fannar vill að sjálfsögðu ekki fara á leikskólann. Hann vill fá að fara með á T-Centralen og taka á móti þeim - sem hann auðvitað mun gera.

Ummæli

Guðlaug sagði…
Ég fæ örugglega miklu flottari pakka en þú, Gutti :Þ
ÉG hlakka svo til...
Hafið það gott með hjónakornunum! Kys og kram til ykkar allra :)
Guðlaug
Sara sagði…
heheheheheeeeeee... ef þið bara vissuð!?

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Arnar er í heimsókn hjá okkur núna
Aftur mætt á bloggið! Þá er Íslandsförinni lokið og ég hef nógan tíma til að sitja yfir þessu bloggi aftur. Það var nú mjög gott að koma heim aftur en þó líka doldið einmanalegt þegar ég fór með Fannar á leikskólann í gær..... aftur orðin ein! Edda vinkona er komin á fullt í vinnu þannig að það er ekki hægt að bögga hana lengur yfir daginn.... það er þó stutt í nýja fjölskyldumeðliminn þannig að það verður bráðum nóg að gera. Helgi er á fullu núna að pæla í bílakaupum.... ég kann ekkert á þessi mál þannig að hann grúskar einn í þessu - hann sýnir mér samt myndir bara svona til að fá samþykki mitt hehehe. Skilyrðin eru þó þau að við kaupum sjálfskiptan station bíl með loftkælingu. Erum með einn Opel Omega í sigtinu núna og fer hann líklega að skoða hann á morgunn.... spennandi! Það er strax búið að bóka gistipláss hjá okkur í febrúar.... endalaus gestagangur hjá okkur :) en það eru Raggi og Munda sem ætla að kíkja til okkar. Hlökkum að sjálfsögðu til að fá þau í heimsókn....
Eins og þið flest líklega vitið er litla prinsessan fædd.... lítil snúlla sem hefur fengið nafnið Sandra Ósk. Hún ákvað að drífa sig í heiminn aðfaranótt 3. október. Hún var að flýta sér svo mikið að ljósmóðirin sem tók á móti henni náði ekki einu sinni að skrá mig inn á fæðingardeildina áður en hún fæddist. Þessar ljósmæður verða alltaf jafn hissa hversu fljót þessi börn mín eru að koma í heiminn..... Fannar er rosalega stoltur af systur sinni. Nefnir nokkrum sinnum á dag hversu lítil og sæt honum finnst hún. Viktor aftur á móti hefur verið í smá baráttu um athygli en virðist þó vera farinn að sætta sig við hlutina núna. Hann er samt voða góður við hana og vill endalaust knúsa og kyssa hana. Allt gengur vel að öðru leyti. Sandra drekkur vel og sefur mikið.... alveg eins og það á að vera þegar maður er svona pínulítill. Hún er rosalega vær og góð.... algjör snúlla :) Fyrsta baðið - 6 daga gömul