Fara í aðalinnihald

helgin


Edda vinkona var hjá okkur í mat á föstudaginn. Hún gisti meira að segja hjá okkur þannig að fyrripart laugardags fór í að skvísast aðeins í Farsta Centrum með henni. Við fjölskyldan droppuðum svo inn hjá Guðrúnu og Jóa og fengum lánaðan barnavagn og barnarúm.... nú get ég farið að dunda mér við að reyna að koma rúminu saman.... án leiðbeininga - hmmmm!!! Nú eigum við bara eftir að kaupa barnabílstól fyrir litla krílið og þá ætti allt að vera tilbúið. Í gær horfði ég á þátt í sjónvarpinu þar sem fylgst var með þremur ófrískum pörum. Í þættinum var sem sagt komið að fæðingu þessara þriggja barna og fékk ég vægast sagt hroll við tilhugsunina!! Úff - hlakka til þegar það verður afstaðið....

Í gær kíktum við á Naturhistoriska riksmuseet. Við vorum rétt búin að skoða einn smá sal þegar allt í einu hljómaði í hátalarakerfinu að allir ættu að yfirgefa bygginguna því eldur væri laus í húsinu. Við héldum fyrst að þetta væri hluti af sýningunni þar sem við vorum rétt að stíga inn í sýningarsal þar sem verið var að sýna myndir af eldgosi hehe. En fólk streymdi út þannig að við eltum auðvitað mannfjöldann. Þegar við vorum nýkomin út komu svo fjórir slökkviliðsbílar á fullri ferð og stoppuðu fyrir utan safnið. Þetta varð náttúrulega hápunktur dagsins hjá Fannari og sagði hann á leiðinni heim að hann vildi verða slökkviliðsmaður þegar hann yrði stór ;) hehe. Sem sagt vel heppnuð ferð í safnið!

Annars var ég að koma af æfingu. Þar er ég alltaf öðru hvoru að lenda í því að fólk komi til mín og segi "oh vad duktig du är". Eins og ég sé eitthvað duglegri en aðrir sem eru að æfa í salnum!!! Svo í dag voru nokkrar ungbarnamæður með mikinn áhuga yfir því hvað ég gerði á æfingunum. Þær spurðu mig alveg bak og fyrir um hvort maður mætti nú gera hitt... og þetta... þegar maður væri ófrískur. Þær voru almennt mjög hissa yfir því að það væri leyfilegt að æfa á meðgöngu.... jaa hérna!

Nú er aftur á móti best að fara að setja súkkulaði á vatnsdeigsbollurnar sem bakaðar voru í gærkvöldi. Þá geta feðgarnir fengið sér bollu þegar þeir koma heim :)

Ummæli

Nafnlaus sagði…
Hei ekki vera að flækjast á söfn núna!!! Við erum alveg að koma!!
KV Munda
Sara sagði…
jamm ok.... það kviknar líka bara í þeim ef við förum á þau!
Nafnlaus sagði…
Held líka að Munda hafi ekkert gaman af svona náttúrulífssafni; hún er meira fyrir Ikea-safnið ;-)
Kv.
Guðrún
Sara sagði…
Gvuð hvað hún er heppin... bara 10 mín. akstur til stæðsta IKEA-"safns" í heimi frá Lövsundsvägen :) Ég var einmitt að koma þaðan með fullt af minjagripum ;)
Nafnlaus sagði…
Nanannaan ég fæ líka að fara til Svíðþjóðar í Ikea (miklu meira gaman heldur en eitthvað U2 í Danmörku)!!!!
Kv Munda
Nafnlaus sagði…
Hehehe, góður!!

Vinsælar færslur af þessu bloggi

Arnar er í heimsókn hjá okkur núna
Aftur mætt á bloggið! Þá er Íslandsförinni lokið og ég hef nógan tíma til að sitja yfir þessu bloggi aftur. Það var nú mjög gott að koma heim aftur en þó líka doldið einmanalegt þegar ég fór með Fannar á leikskólann í gær..... aftur orðin ein! Edda vinkona er komin á fullt í vinnu þannig að það er ekki hægt að bögga hana lengur yfir daginn.... það er þó stutt í nýja fjölskyldumeðliminn þannig að það verður bráðum nóg að gera. Helgi er á fullu núna að pæla í bílakaupum.... ég kann ekkert á þessi mál þannig að hann grúskar einn í þessu - hann sýnir mér samt myndir bara svona til að fá samþykki mitt hehehe. Skilyrðin eru þó þau að við kaupum sjálfskiptan station bíl með loftkælingu. Erum með einn Opel Omega í sigtinu núna og fer hann líklega að skoða hann á morgunn.... spennandi! Það er strax búið að bóka gistipláss hjá okkur í febrúar.... endalaus gestagangur hjá okkur :) en það eru Raggi og Munda sem ætla að kíkja til okkar. Hlökkum að sjálfsögðu til að fá þau í heimsókn....
Eins og þið flest líklega vitið er litla prinsessan fædd.... lítil snúlla sem hefur fengið nafnið Sandra Ósk. Hún ákvað að drífa sig í heiminn aðfaranótt 3. október. Hún var að flýta sér svo mikið að ljósmóðirin sem tók á móti henni náði ekki einu sinni að skrá mig inn á fæðingardeildina áður en hún fæddist. Þessar ljósmæður verða alltaf jafn hissa hversu fljót þessi börn mín eru að koma í heiminn..... Fannar er rosalega stoltur af systur sinni. Nefnir nokkrum sinnum á dag hversu lítil og sæt honum finnst hún. Viktor aftur á móti hefur verið í smá baráttu um athygli en virðist þó vera farinn að sætta sig við hlutina núna. Hann er samt voða góður við hana og vill endalaust knúsa og kyssa hana. Allt gengur vel að öðru leyti. Sandra drekkur vel og sefur mikið.... alveg eins og það á að vera þegar maður er svona pínulítill. Hún er rosalega vær og góð.... algjör snúlla :) Fyrsta baðið - 6 daga gömul